
Menning

Troðfullt í Marshall-húsinu á opnun listrænna systra
Fullt var út úr dyrum í Þulu galleríi í Marshall-húsinu síðastliðinn laugardag við opnun á sýningu systranna og listakvennanna Lilju og Ingibjargar Birgisdætra.

Tóku saman höndum fyrir Hendi næst
Margt var um manninn í Ásmundarsafni í síðastliðinni viku á opnun sýningarinnar Hendi næst.

Settist í öll sæti Eldborgar og tók 5000 sjálfsmyndir
Þýski listamaðurinn Martin Liebscher leggur mikið á sig fyrir verk sín. Hann heimsótti Hörpu, tónlistar-og ráðstefnuhús, haustið 2022 og tók heldur óhefðbundnar myndir í Eldborg.

Emils- og Línu-tónskáldið Georg Riedel látið
Sænska tónskáldið og djasstónlistarmaðurinn Georg Riedel, sem þekktastur er fyrir að hafa samið tónlistina í þáttunum og myndunum um Línu langsokk og Emil í Kattholti, er látinn. Hann varð níræður að aldri.

Kristín og Anna tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Kristín Eiríksdóttir og Anna María Bogadóttir eru meðal þeirra rithöfunda sem tilnefndar eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024.

Hildur Hermóðsdóttir er látin
Hildur Hermóðsdóttir, kennari og bókaútgefandi, er látin, 73 ára að aldri.

Taka stutt hlé frá leikhúsinu fyrir ferðalög til Perú og Keníu
„Það er svo gaman að fá að vera umkringd ungu fólki og fólki á öllum aldri. Það er enginn munur á okkur þannig, við erum öll manneskjur,“ segir stórleikkonan Kristbjörg Kjeld. Hún fer með hlutverk í leikritinu Með Guð í vasanum í leikstjórn Maríu Reyndal. Kristbjörg, sem verður 89 ára í sumar, er á leið til Perú í lok mánaðarins og fer sýningin því í pásu fram á vor.

Lék á sviði fyrir dóttur Bill Gates
Leikarinn og handritshöfundurinn Styrmir Elí Ingólfsson tók U-beygju í lífinu eftir hagfræðinám hérlendis og starf í ferðabransanum. Þegar hann áttaði sig á því að hann væri á vitlausri braut sótti hann um í leiklistarskóla í New York og flutti út. Hann stendur nú að sýningu úti sem hefur fengið góðar viðtökur og hefur áhorfendasalurinn gjarnan verið stjörnum prýddur. Blaðamaður ræddi við Styrmi.

Myndaveisla: Menningarþyrstir fengu listrænt D-vítamín
Margt var um manninn á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Menningarþyrstir gestir komu þangað að sækja sér auka skammt af skapandi orku úr myndlistarlífi samtímans hérlendis á samsýningunni D-vítamín.

Myndaveisla: Gleði og tár í stærstu opnuninni til þessa
Myndlistarunnendur létu sig ekki vanta í Ásmundarsal á laugardag. Metaðsókn var á opnun sýningar Hreins Friðfinnssonar og Sigurðar Guðjónssonar.

Jodie Foster sagði Ólafíu Hrönn vera bestu leikkonu í heimi
„Þetta var ótrúlega skemmtilegt og þægilegt ævintýri,“ segir leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir um þátttöku sína í True Detective þáttaröðinni.

Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör
Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2024 fyrir ljóðið Verk að finna. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag.

Fallegustu bækur í heimi til sýnis í Garðabæ
Fallegustu bækur í heimi eru nú til sýnis á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Grafískur hönnuður segir að í bókverkunum sé hugsað út í minnstu smáatriði, allt frá staðsetningu blaðsíðutalsins og því hvernig titlar séu settir upp.

Fólk aðframkomið af siðferðisþreki haldi sig heima
Leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson segist skilja gagnrýni sem leikritið Lúna hefur fengið en er ósammála því að það eigi að taka verkið af dagskrá þó fólk sé ósátt. Syndaselirnir verði líka að eiga sitt leikhús í friði.

Myndaveisla: Listrænt fjör í Marshallhúsinu
Margt var um manninn á sýningaropnun hjá Þulu Gallery í Marshallhúsinu síðastliðinn laugardag. Sýningin, sem ber heitið Árfarvegur, býður gestum að stíga inn í heim þar sem hið stóra og smáa mætist og er samsýning Kristins E. Hrafnssonar, Önnu Maggýjar, Hrafnkels Sigurðssonar og Vikram Pradhan.

Bera fullkomið og listrænt traust til hvor annarrar
„Ég held að ég hafi verið tveggja ára þegar ég mætti í fyrsta danstímann. Mamma var með dansskóla svo ég var með í öllum tímum sem hún kenndi,“ segir Snædís Lilja Ingadóttir. Hún er danshöfundur verksins Árstíðirnar ásamt Valgerði Rúnarsdóttur en Íslenski dansflokkurinn frumsýnir verkið næstkomandi laugardag og er tilhlökkunin í hópnum orðin mikil.

„Starf listamannsins er að mörgu leyti mjög sjálfhverft“
„Mér gengur yfirleitt best ef ég er ekki fyrir sjálfum mér,“ segir listamaðurinn Steingrímur Gauti Ingólfsson sem opnar sýningu í galleríi í París á föstudaginn.

Notalegur staður til að slamma á
Ljóðaslamm 2024 verður haldið í Borgarbókasafninu Grófinni á Safnanótt þann 2. febrúar næstkomandi. Slammið er opið öllum sem eru 16 ára og eldri.

Ráðin framkvæmdastjóri Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar
Ingibjörg Gréta Gísladóttir hefur verið verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Hún hefur þegar hafið störf.

Ætlar aldrei að flytja til Íslands aftur
Mikael Torfason rithöfundur er fluttur með fjölskyldu sína til Bandaríkjanna, Los Angeles nánar tiltekið. Mikael gerir ekkert með hálfum huga og hann er eiginlega orðinn meiri Kani en Kanarnir sjálfir.

Vetrarparadísin höfðar til íslenskra bókakaupenda
Þá liggur það fyrir og kemur ekki á óvart; söluhæsta bók síðasta árs var Sæluríki Arnaldar Indriðasonar. Á hæla hans fylgja þau Yrsa Sigurðardóttir með Frýs í æðum blóð og Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.

Auður Haralds er látin
Auður Haralds rithöfundur er látin, 76 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi í gær eftir stutt veikindi.

„Stundum er best að skjóta fyrst og spyrja svo“
„Ég held að í þeim raunveruleika sem við búum við í dag sé hugsunin að mörgu leyti orðin óvinur okkar,“ segir listamaðurinn Jakob Veigar í samtali við blaðamann. Hann stendur fyrir sýningunni „I think, therefore I'm fucked“ sem opnar í Listasal Mosfellsbæjar næstkomandi laugardag.

Hefur sýnt um allan heim en leitar nú í íslensku ræturnar
Listakonan Karen Ösp Pálsdóttir hefur löngum verið búsett í Bandaríkjunum þar sem hún lagði stund á myndlist við listaháskóla í Maryland. Undanfarin ár hefur hún verið starfrækt í New York borg en var á dögunum að opna sýna fyrstu einkasýningu hér á Íslandi.

Árið 2024 verður tími breytinga í lífi Friðriks Ómars
Skemmtikrafturinn Friðrik Ómar ætlar að halda upp á áramót í Færeyjum með vini sínum Jogvan Hansen og fjölskyldu hans. Friðrik Ómar segist leita svara úti í Færeyjum.

Leikhúsið lúffaði og breytti um titil
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld hefur fallist á að breyta titli verks síns. Það átti að heita Kvöldstund með Heiðari snyrti en heitir nú Lúna.

„Mig langar að sýna hvernig gott fólk gerir slæma hluti“
„Jólin koma alveg þó að það sé einhver þvottur í óhreinatauskörfunni. Ég fann fyrir létti þegar ég uppgötvaði það,“ segir rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir. Hún er viðmælandi í Jólasögu.

Bækur Gyrðis aldrei verið vinsælli
Ljóðabók Gyrðis Elíassonar, Dulstirni/Meðan glerið sefur er uppseld í helstu bókabúðum. Gyrðir hlaut ekki styrk úr launasjóði rithöfunda og bókin var ekki tilnefnd til bókmenntaverðlauna, en bóksali segir rithöfundinn aldrei hafa verið vinsælli.

Tekur við sem forstöðumaður í Salnum í Kópavogi
Bjarni Haukur Þórsson leikari hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann tekur við stöðunni af Aino Freyja Järvelä.

Stefnir á að skrifa glæpaleikrit
Rithöfundadraumurinn kviknaði snemma hjá glæpasagnahöfundinum Ragnari Jónassyni en í æsku var hann duglegur að skrifa ljóð og smásögur fyrir afa sinn og ömmu. Helgunum eyddi hann svo gjarnan á Þjóðarbókhlöðunni með föður sínum þar sem hann datt inn í heim bókanna.