Lína Langsokkur - Uppselt er á 50 sýningar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 15. september 2025 20:05 Birta Sólveig Söring Þórisdóttir leikur Línu en hún er frá bænum Selalæk rétt við Hellu í Rangárþingi ytra. Hún stendur sig frábærlega í sínu hlutverki. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það gekk mikið á í Þjóðleikhúsinu um helgina og mun ganga á næstu vikur og mánuði því Lína Langsokkur er mætt á svið leikhússins með sinn munnsöfnuð, stríðni og krafta. Uppselt er á 50 sýningar, sem þýðir að um 25 þúsund manns hafa tryggt sér miða á leikritið.
Leikritið um Línu Langsokk nýtur alltaf mikilla vinsælda þar sem það er sett upp en hér eru við að tala um aðalpersónu í bókaflokki rithöfundarins Astrid Lindgren. Lína er rauðhærð, freknótt, mjög fjörug og alveg óútreiknanleg í þeim uppátækjum, sem hún tekur upp á. Þá er hún mjög, mjög sterk. Leikritið um Línu var frumsýnt um helgina en leikritið er að fá mjög góðar viðtökur landsmanna ef marka má miðasöluna. „Það er orðið uppselt á yfir fimmtíu sýningar og þar með erum við búin að selja yfir tuttugu og fimm þúsund miða og erum að bæta við aukasýningum alveg eins hratt og við mögulega getum til þess að tryggja að allir fái að upplifa þessa stórkostlegu gleði og hjartnæmu sýningu,” segir Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri. Með hlutverk Línu fer Birta Sólveig Sören, sem útskrifaðist úr Leiklistarskólanum í fyrra og stendur hún sig frábærlega í sýningunni eins og allir aðrir leikarar. „Það er orðið uppselt á yfir fimmtíu sýningar og þar með erum við búin að selja yfir tuttugu og fimm þúsund miða”, segir Magnús Geir, Þjóðleikhússtjóri.Magnús Hlynur Hreiðarsson Leikstjóri sýningarinnar og danshöfundur eru í skýjunum með viðtökunum á Línu Langsokk. „Það er náttúrulega fullt af fólki á sviðinu, sem er búið að leggja sig hart fram og búið að æfa hérna í margar vikur. Það eru 25 á sviðinu og svo erum við með 18 börn, sem skipta á milli sín, þar að segja níu og níu í hverri sýningu,” segir Agnes Wild, leikstjóri sýningarinnar. Mikið er dansað í sýningunni og allskonar aðrar hreyfingar gerðar, sem er búið að æfa vel. „Það getur ekki bara hver sem er hoppað inn í þetta, það þarf að hafa fyrir því að ná þessu, en mjög skemmtilegt og þau standa sig mjög vel,” segir Elma Rún Kristinsdóttir, danshöfundur sýningarinnar. Þetta eru ótrúlega flottir krakkar, sem eru að taka þátt í sýningunni, eruð þið ekki sammála því? „Já, þau eru náttúrulega búin að vera ótrúlega stórkostleg þessir krakkar. Þau eru á aldrinum 10 til 15 ára. Þau eru búin að leggja hart að sér að æfa sig aftur og aftur, þau eru stjörnurnar í sýningunni,” segir Agnes. Agnes Wild, leikstjóri sýningarinnar (t.v.) og Elma Rún Kristinsdóttir, danshöfundur sýningarinnar.Magnús Hlynur Hreiðarsson Á sýningum helgarinnar stóðu áhorfendur alltaf upp og klöppuðu og klöppuðum fyrir leikurum til að sýna þakklæti sitt fyrir frábæra sýningu. Hægt er að fá mynd af sér með Línu fyrir sýningar og í hléi. Hún er reyndar á pappaspjaldi.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða Þjóðleikhússins
Reykjavík Þjóðleikhúsið Menning Mest lesið Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka Erlent Fleiri fréttir „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Komið gott af borgarmálum og meirihlutaslit hafi engin áhrif Töldu nauðsynlegt að taka fast á Hells Angels og Kourani fær endurkomubann Ætlar sér formennsku hjá ungum Sjálfstæðismönnum Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Þórdís Lóa ætlar ekki fram Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Sjá meira