Tónlist
160 161 162 163 164 165 166 167 168 … 226 ›
Sjö tomma frá Retro Hljómsveitin Retro Stefson hefur sent frá sér sjö tommu vínylplötu með laginu Qween. Á B-hlið plötunnar er að finna endurhljóðblandaða útgáfu af laginu eftir Hermigervil. Hann er einmitt að aðstoða sveitina við upptökur á næstu plötu hennar, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Áætlað er að hún komi út í lok sumars. Tónlist 26.5.2012 07:00
Vel heppnuð endurkoma Stone Roses Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í bænum Warrington á Englandi fyrir skömmu. Sveitin hætti árið 1996 en í fyrra var tilkynnt um endurkomu hennar. Tónlist 25.5.2012 16:30
Kristján samdi fyrir Klaufana Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson samdi nánast öll lög og texta á væntanlegri plötu kántrísveitarinnar Klaufarnir. Tónlist 25.5.2012 15:00
Grípandi þjóðlagapopp úr herbúðum Edward Sharpe Edward Sharpe and the Magnetic Zeros gefur út plötuna Here í næstu viku. Hljómsveitin sló í gegn með laginu Home sem hefur hljómað ótt og títt bæði í sjónvarpi og útvarpi. Tónlist 24.5.2012 23:00
Síðasta lag Whitney Houston Síðasta lagið sem Whitney Houston tók upp áður en hún lést hefur verið gefið út. Það er undir diskóáhrifum og heitir Celebrate. Þar syngur söngkonan sáluga með sigurvegaranum úr American Idol 2007, Jordin Sparks. Lagið mun hljóma í væntanlegri kvikmynd, Sparkle, þar sem Houston leikur móður þriggja systra sem reyna fyrir sér í tónlistarbransanum og leikur Sparks eina þeirra. Um er að ræða endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1976. Tónlist 24.5.2012 15:30
Blúshátíð snýr aftur eftir gos Tvær þekktar blússöngkonur frá Chicago og margir af færustu blústónlistarmönnum landsins stíga á svið á Norden Blues Festival sem verður haldin hátíðleg á Hvoli á Hvolsvelli um hvítasunnuhelgina. Tónlist 24.5.2012 11:30
1860 sendir frá sér lag Hljómsveitin 1860 hefur sent frá sér lagið Go Forth sem er tekið af væntanlegri plötu sem kemur út í haust. Sagan, frumburður sveitarinnar, kom út í fyrra og innihélt lögin Snæfellsnes, Orðsending að austan og For You, Forever sem komust öll á topp 10 á vinsældarlista Rásar 2. Hljómsveitin var einnig tilnefnd sem bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum og sem nýliðar ársins á hlustendaverðlaunum X-ins 977. Tónlist 24.5.2012 09:00
Erfitt en gaman á Evróputúr "Þetta verður erfitt en ógeðslega gaman,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco. Rokksveitin er á leiðinni í mánaðarlangt tónleikaferðalag um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 30. maí. Stutt er síðan fyrsta platan, A Long Time Listening, kom út á þeirra eigin vegum í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, auk þess sem hún kom út stafrænt á iTunes, Amazon og víðar. Tónlist 23.5.2012 14:00
Anna Þorvalds frumflytur ný rafverk í kvöld Tónleikaröðin Flakk hefst á Listahátíð í Reykjavík í kvöld með tónleikum Önnu Þorvaldsdóttur. Listahátíð í Reykjavík býður upp á tónleika þriggja tónskálda sem kynna nýja tónlist sína. Tónlist 23.5.2012 12:00
Langar að semja nýtt lag til heiðurs Bee Gees „Mér finnst þetta bara hræðilegt,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi, um fráfall Robins Gibb úr hljómsveitinni Bee Gees. Tónlist 22.5.2012 15:00
Listin að koma íslenskri tónlist inn hjá iTunes, Amazon og Spotify Stafræn dreifing verður aðalumræðuefni fræðslukvölds ÚTÓN, útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar, sem fer fram í Norræna húsinu í kvöld. Þar verður leitast við að svara því hvernig tónlistarmenn geta komið tónlist sinni að á iTunes, Amazon og fleiri netveitum sem selja tónlist. Einnig á streymiþjónustur á borð við Spotify, sem hefur hvorki meira né minna en 10 milljón notendur. Tónlist 22.5.2012 11:30
Adele með tólf verðlaun Adele var sigurvegari Billboard-tónlistarverðlaunanna sem voru haldin í Los Angeles. Hún hlaut tólf verðlaun, þar á meðal sem besti flytjandinn og fyrir bestu plötuna, 21. Söngkonan, sem hafði verið tilnefnd til átján verðlauna, var ekki viðstödd verðlaunahátíðina. Tónlist 22.5.2012 11:00
Nasatónleikar GusGus á DVD "Okkur þótti viðeigandi að skrásetja þessa tónleika og gefa út fyrir aðdáendur okkar til að eiga,“ segir Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi veira, meðlimur sveitarinnar GusGus sem tók upp tónleika sína á Nasa um síðustu helgi. Tónlist 21.5.2012 14:00
Háski skapar rokkstemningu Þungarokkssveitin Skálmöld er nú við upptökur á annari breiðskífu sinni, Börnum Loka. Í hljóðverinu má finna risastóran grjóthnullung, sem hljómsveitarmeðlimir nefna Háska og var fluttur þangað með erfiðleikum fyrir tveimur árum. Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari hljómsveitarinnar, segir hlutverk grjótsins vera að skapa réttu stemninguna í hljóðverinu. Tónlist 16.5.2012 14:00
Kominn úr jakkafötunum og aftur í strigaskóna "Ég fékk þessa veiki aftur og af hverju ekki bara að kýla á það?“ segir tónlistarmaðurinn og hagfræðingurinn Sölvi Blöndal. Tónlist 16.5.2012 12:00
Þrjú hundruð hitta goðsögn "Við erum búnir að reyna að fá hann í mörg ár og loksins hafðist það,“ segir Sindri Már Heimisson, framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins. Tónlist 16.5.2012 08:00
Einvalalið fylgir Bryan Ferry Tónlistarmaðurinn Bryan Ferry verður með einvalalið með sér á tónleikunum sem hann heldur í Hörpu 27. og 28. maí. Tónlist 14.5.2012 14:00
Fimmtán á Music Mess Fimmtán hljómsveitir hafa verið bókaðar á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí. Meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn eru Tilbury, Man Made sem er leidd af Nile Marr, syni Johnny Marr úr The Smiths, söngkonan Laura J. Martin og rokkararnir í Reykjavík!. Áður hafði verið tilkynnt um þátttöku Legend, Benna Hemm Hemm, My Bubba & Mi og fleirum. Tónlist 12.5.2012 17:00
Beastie Boys aftur á lista Sala á plötum hljómsveitarinnar Beastie Boys hefur stóraukist eftir andlát Adams "MCA“ Yauch. Sveitin á sjö breiðskífur á Billboard-listanum um þessar mundir. Tónlist 12.5.2012 11:00
Hjálmar ferðast um Evrópu Hljómsveitin Hjálmar verður á faraldsfæti í sumar. Hún kemur fram á tónlistarhátíðunum Festival de-affaire og Into The Great Wide Open í Hollandi, Bazant Pohoda-hátíðinni í Slóvakíu, Ilmiö-hátíðinni í Finnlandi og á Íslandshátíð í Mobryggja í Noregi. Eins eru í undirbúningi tónleikar í Moskvu og Grænlandi. Hér á Íslandi spila Hjálmar í annað sinn á Þjóðhátíð í Eyjum föstudaginn 3. ágúst. Tónlist 11.5.2012 10:00
Þakkar fyrir stuðninginn Ad-Rock, eða Adam Horovitz, úr Beastie Boys hefur þakkað aðdáendum hljómsveitarinnar fyrir stuðninginn eftir að félagi hans, Adam Yauch, féll frá. Hann lést á föstudaginn, 47 ára, eftir þriggja ára baráttu við krabbamein. Tónlist 10.5.2012 16:00
Sigur Rós fetar í fótspor Bjarkar Hljómsveitin Sigur Rós spilar á Airwaves-hátíðinni í fyrsta sinn í ellefu ár þegar hún stígur á svið í Nýju Laugardalshöllinni 4. nóvember, á síðasta degi hátíðarinnar. Sigur Rós spilaði síðast á Airwaves í Listasafni Reykjavíkur árið 2001. Tónlist 9.5.2012 07:00
Kynna íslenska tónlist í borg englanna Ólafur Arnalds mun troða upp á árlegum kynningarviðburði fyrir íslenska tónlist í Los Angeles 9. júní. Tónlist 8.5.2012 11:00
Spiluðu með Chicane í London "Þetta gekk ótrúlega vel. Það var troðfullt þarna í Koko-höllinni,“ segir Hans Pjetursson úr Vigra. Hljómsveitin spilaði á tónleikastaðnum Koko í London um síðustu helgi á útgáfutónleikum breska danstónlistarmannsins Chicane. Tónlist 5.5.2012 11:00
Verri dómar en þeir héldu Lars Ulrich, trommari Metallica, segir að samstarfsverkefni hljómsveitarinnar og Lou Reed, Lulu, hafi fengið mun verri viðbrögð en þeir bjuggust við. Margir gagnrýnendur töldu plötuna með þeim verstu á síðasta ári og hreinlega hökkuðu hana í sig. Tónlist 4.5.2012 13:00
Sálarrokk úr Suðurríkjum Bandaríska hljómsveitin Alabama Shakes hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir grípandi Suðurríkjarokk sitt. Fyrsta platan er nýkomin út. Alabama Shakes hefur vakið athygli með lagi sínu Hold On sem hljómar óneitanlega eins og eitthvað sem Kings of Leon hefði getað sent frá sér. Þetta Suðurríkja-sálarrokklag er tekið af fyrstu plötu sveitarinnar, Boys & Girls, sem kom út í síðasta mánuði. Tónlist 3.5.2012 16:00
Leonard Cohen tónleikar í Iðnó „Við spilum eingöngu tónlist eftir Leonard Cohen," segir Ólafur Kristjánsson bassaleikari ábreiðubandsins The Saints of Boogie Street, sem gaf út diskinn Leonard Cohen Covered í síðustu viku. Tónlist 3.5.2012 12:00
Stórviðburður í Hörpu Einn af hápunktum Listahátíðar í Reykjavík 2012 verða, án efa, tónleikar breska tónlistarmannsins Bryans Ferry í Hörpu 27. og 28. maí. Ferry er á meðal stóru nafnanna í poppsögu síðustu 40 ára. Hann lærði myndlist á sjöunda áratugnum og stofnaði þá sínar fyrstu hljómsveitir, The Banshees og Gas Board sem hvorug vakti nokkra athygli. Það breyttist með hljómsveitinni Roxy Music árið 1970. Tónlist 3.5.2012 09:55
Hermigervill aðstoðar Retro Stefson á nýrri plötu Tónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen, eða Hermigervill, aðstoðar hljómsveitina Retro Stefson við gerð hennar næstu plötu og verður tvíeykið saman í hljóðveri í þessari viku. Tónlist 2.5.2012 09:00
Lágstemmd og leyndardómsfull Sigur Rós fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í breska tónlistartímaritinu Q fyrir plötuna Valtara. Tónlist 28.4.2012 18:00