Bora eftir jarðhita á Tenerife Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu. Viðskipti erlent 28.5.2026 15:13
ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni. Viðskipti erlent 28.5.2026 12:35
Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Meiriháttar truflanir eru á greiðslumiðlun í Danmörku, Svíþjóð og í Noregi. Ástæðan er bilun í tölvukerfi hjá greiðslumiðluninni Nets, sem er ein sú stærsta á Norðurlöndum. Viðskipti erlent 21.5.2026 11:41
Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna. Viðskipti erlent 2.5.2026 14:50
Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. Viðskipti erlent 2.5.2026 08:23
Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið hærra frá árinu 2022 eftir miklar hækkanir á mörkuðum í Asíu í morgun. Viðskipti erlent 30.4.2026 07:29
Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Fyrsti dagur réttarhaldanna í máli Elons Musk gegn Sam Altman, annars stofnanda og núverandi forstjóra gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, fór fram í Kaliforníu í gær. Máluðu Musk og lögmenn Altmans mjög mismunandi myndir af uppruna fyrirtækisins en Musk sakaði Altman um að „stela góðgerðafélagi“. Viðskipti erlent 29.4.2026 11:36
Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að Meta, eigandi Facebook og Instagram, hafi brotið gegn lögum ESB um stafræna þjónustu [e. Digital Services Act, DSA] með því að tryggja ekki betur að börn undir þrettán ára aldri noti ekki Facebook og Instagram. Viðskipti erlent 29.4.2026 10:47
Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. Viðskipti erlent 28.4.2026 13:24
Tim Cook stígur til hliðar Tim Cook, forstjóri tæknirisans Apple, mun stíga til hliðar úr starfi sínu seinna á þessu ári og þess í stað verða stjórnarformaður. Cook hefur stjórnað Apple frá því hann tók við starfinu af Steve Jobs, skömmu fyrir andlát hans, árið 2011. Viðskipti erlent 20.4.2026 21:16
Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi. Viðskipti erlent 13.4.2026 15:47
Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag forsetatilskipun sem felur í sér hundrað prósenta toll á innflutt lyf sem framleidd eru undir einkaleyfi. Framleiðendur geta komið sér hjá tollinum með því að semja við Bandaríkjastjórn um lægra verðlag eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin innan Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 2.4.2026 22:58
Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Evrópusambandið fylgir fordæmi Íslands og hefur heimilað ofveiði á makríl í Norður-Atlantshafi, þvert á ráðleggingar vísindamanna og Alþjóðahafrannsóknarráðsins. Framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries lýsir áhyggjum af framtíð makrílstofnsins og segir ljóst að með þessu áframhaldi geti stofninn ekki endurnýjað sig. Viðskipti erlent 31.3.2026 23:05
Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Starfsmenn tæknirisans Anthropic virðast óvart hafa lekið frumkóða risamállíkansins Claude Code. Lekinn ætti ekki að hafa nokkur áhrif á notendur en hann sviptir þó hulunni af tæknilausnum fyrirtækisins. Viðskipti erlent 31.3.2026 19:33
Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl næstkomandi til þess að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 30.3.2026 08:29
Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Apple hefur hætt framleiðslu á Mac Pro-borðtölvu sinni og hefur fjarlægt tölvuna af vef sínum samkvæmt erlendum miðlum. Í fréttum 9to5 og Macrumours segir að Apple hafi greint frá því að ekki standi til að hanna nýja týpu af tölvunni eða nýtt módel. Viðskipti erlent 27.3.2026 09:04
Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna. Tiktok og Snapchat gerðu dómsátt í málinu. Viðskipti erlent 26.3.2026 22:07
OpenAI kippir Sora úr sambandi Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins. Viðskipti erlent 24.3.2026 22:59
Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Áhrif orkukreppunnar vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran nú eru meiri en tveggja olíukreppa á 8. áratugnum og innrásarinnar í Úkraínu samanlagt. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur þjóðarleiðtoga hafa ekki gert sér greint fyrir alvarleikanum. Viðskipti erlent 23.3.2026 09:15
Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Tillaga að breytingum á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) verður lögð fram á næstu dögum, að sögn forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Breytingunum er ætlað að bregðast við háu raforkuverði í Evrópu. Viðskipti erlent 20.3.2026 10:12
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19.3.2026 09:48
Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild. Viðskipti erlent 17.3.2026 14:47
Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Viðskipti erlent 16.3.2026 17:48
Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Sænsku fyrirtækin Ikea og Volvo er á meðal rúmlega hundrað fyrirtækja og fjárfesta sem skora á Evrópusambandið að veikja ekki viðskiptakerfi þess með losunarheimildir (ETS). Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á kerfið í aðdraganda endurskoðunar á því. Viðskipti erlent 13.3.2026 10:46