Viðskipti erlent
162 163 164 165 166 167 168 169 170 … 334 ›
Lækkanir á öllum helstu hlutabréfamörkuðum Hlutabréfavísitölur lækkuðu víðast hvar á alþjóðamörkuðum í dag. Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 0,17 prósent og S&P vísitalan um 0,3 prósent. Í Evrópu lækkaði DAX vísitalan um 0,11 prósent og FTSE vísitalan í Bretlandi um 0,37 prósent. Viðskipti erlent 17.9.2012 22:15
Yfir 2 milljónir pöntuðu sér iPhone á einum sólarhring Yfir tvær milljónir manna pöntuðu sér iPhone 5 í forsölu á fyrsta sólarhringnum, sem eru tvöfalt fleiri en pöntuðu sér 4S símann í fyrra. Eftirspurnin eftir símanum er langt umfram væntingar tæknirisans Apple, sem framleiðir símann. Gert er ráð fyrir því að ekki verði hægt að afgreiða allar pantanirnar strax og því mega notendur búast við að fá ekki símann fyrr en í október. iPhone 5 var kynntur til leiks fyrir helgi en hann er bæði lengri, hraðari og með betri upplausn en sá á undan. Viðskipti erlent 17.9.2012 15:56
Merkel styður áætlun Seðlabanka Evrópu Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er ánægð með áætlun Seðlabanka Evrópu (SE) sem snýr að kaupum á ríkisskuldabréfum Evrópuþjóðum sem eiga í vandræðum vegna mikilla skulda og hás vaxtaálags. Merkel sagði á blaðamannafundi í dag að hún efaðist ekki um að áætlun bankans væri vel undirbyggð og að lánafyrirgreiðsla bankans, með skuldabréfakaupunum, yrði ekki tapað fé að lokum, eins og margir hafa gagnrýnt bankann fyrir. Viðskipti erlent 17.9.2012 15:44
Markaðir í Evrópu sýna rauðar tölur lækkunar Vísitölur hlutabréfamarkaða í Evrópu hafa víðast hvar lækkað í morgun eftir að viðskipti hófust. Lækkanirnar eru öðru fremur raktar til þess að erfiðir tímar séu framundan í efnahagslífi margra ríkja Evrópu, ekki síst Spánar, að því er fram kemur á vef Wall Street Journal (WSJ). Í fréttaskýringu WSJ segir að búist sé við því að haustið og vetrarmánuðir á Spáni muni einkennast af fjöldamótmælum vegna niðurskurðar, og atvinnuleysis, en það mælist nú tæplega 25 prósent á Spáni. Viðskipti erlent 17.9.2012 13:00
Græðgi er góð sagði Gekko - eldast ummælin vel? Fjárfestirinn Gordon Gekko, leikinn af Michael Douglas í kvikmyndinni Wall Street frá 1987 (og Wall Street - Money Never Sleeps frá 2010), sagði margt minnisstætt þegar hann lýsti viðskiptunum á Wall Street í New York. Líklega eru ummælin; Græðgi er góð (Greed is good), frægust en mörg önnur ummæli Gekko eru einnig eftirminnileg. Douglas fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Wall Street. Viðskipti erlent 17.9.2012 08:47
Heimsmarkaðsverð á áli hækkar verulega Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað verulega á undanförnum dögum. Verðið stendur nú í 2.175 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Viðskipti erlent 17.9.2012 08:38
Heimsmarkaðsverð á olíu ekki hærra í fjóra mánuði Heimsmarkaðsverð á olíu er nú það hæsta sem það hefur verið undanfarna fjóra mánuði og reiknað er með að verðið haldist hátt áfram. Viðskipti erlent 17.9.2012 06:51
Eignarhlutir ríkisins tæplega 200 milljarða virði Eignarhlutir ríkisins í endurreistu bönkunum eru nú tæplega 200 milljarða króna virði, sé mið tekið af eiginfjárstöðu bankanna (innra virði). Ríkið hyggst selja eignarhluti í bönkunum á næstu árum, en halda þó enn eftir kjölfestuhlut í Landsbankanum. Viðskipti erlent 16.9.2012 19:30
Indverjar opna smásölumarkaðinn fyrir risakeðjum Stjórnvöld í Indlandi hafa ákveðið að opna smálsölumarkaðinn í landinu fyrir stórum alþjóðlegum fyrirtækjum, en til þessa hefur markaðurinn verið bundinn við innlend fyrirtæki, sem mörg hver eru risavaxin. Nýtt regluverk gerir ráð fyrir að alþjóðleg fyrirtæki megi eiga allt að 51 prósent eignarhlut í fyrirtækjum sem starfa á smásölumarkaði í Indlandi. Talið er nær öruggt að bandarísku keðjurnar Walmart og Tesco muni ráðandi hluti í indverskum fyrirtækjum, en þær hafa sótt það fast undanfarin ár, án þess að stjórnvöld hafi heimilað það. Viðskipti erlent 16.9.2012 09:38
Mikil uppsveifla á öllum mörkuðum Mikil uppsveifla hefur verið á mörkuðum í Bandaríkjunum í gærkvöldi og Asíumörkuðum í nótt. Sú uppsveifla heldur síðan áfram á helstu mörkuðum Evrópu í morgun. Viðskipti erlent 14.9.2012 08:20
Dollarinn féll gagnvart evru eftir tilkynningu Bernanke Dollarinn féll töluvert gagnvart evrunni í gærkvöldi í framhaldi af því að Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna tilkynnti að peningaprentvélar bankans yrðu ræstar að nýju. Viðskipti erlent 14.9.2012 07:04
Tölvuþrjótar setja vírusa í tölvur á framleiðslustiginu Tölvuþrjótar eru að færa sig upp á skaftið og einbeita sér nú í auknum mæli í að koma vírusum sínum fyrir í tölvum á framleiðslustigi. Viðskipti erlent 14.9.2012 06:48
iPhone 5 ekki fáanlegur hér landi fyrr en í lok mánaðarins Nýr iPhone verður ekki fáanlegur á Íslandi fyrr en í lok september. Fæstir deila um fallegt útlit en tækninýjungar virðast af skornum skammti. Umboðsaðili Samsung telur blómaskeið iPhone á enda. Viðskipti erlent 13.9.2012 20:15
Millitengi fyrir vörur Apple dýrt og ljótt Nýjasti snjallsími Apple, iPhone 5, leit dagsins ljós í gær. En afhjúpun Apple boðaði einnig endalok hvers einasta aukahlutar sem viðskiptavinir Apple hafa keypt fyrir raftæki sín. Viðskipti erlent 13.9.2012 13:32
Lántökukostnaður Ítalíu lækkar um nær helming Lántökukostnaður Ítalíu hefur lækkað um nær helming frá því í júlí s.l. Útboð var á ítölskum ríkisskuldabréfum til þriggja ára í morgun fyrir fjóra milljarða evra. Viðskipti erlent 13.9.2012 09:58
Lego-fjölskyldan áfram sú langauðugasta í Danmörku Lego-fjölskyldan, með Kirk Kristiansen í broddi fylkingar, er áfram langauðugasta fjölskyldan í Danmörku. Viðskipti erlent 13.9.2012 09:17
Gengi evrunnar heldur áfram að styrkjast Evran heldur áfram að styrkjast gagnvart dollaranum í framhaldi af því að stjórnlagadómstóll Þýskalands úrskurðaði í gærmorgun að landinu væri heimilt að taka þátt í stöðugleikasjóði evrusvæðisins. Viðskipti erlent 13.9.2012 06:44
iPhone 5 kominn út- Lengri, léttari og þynnri "Það er bara bomba komin inn á markaðinn. Þeir hafa komið okkur á óvart og sýnt að þeir geta gert miklu öflugri og betri græju - en hafa hana þó léttari og þynnri sem er eitthvað sem aðrir framleiðndur hafa ekki verið að gera," segir Björgvin Björgvinsson, sérfræðingur hjá Epli.is, í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Viðskipti erlent 12.9.2012 18:26
Stjórnlagadómstóllinn samþykkir aðild Þjóðverja að ESM Þýski stjórnlagadómstóllinn í Karlsruhe hefur úrskurðað að Þjóðverjum sé heimilt að eiga aðild að stöðugleikasjóði evrusvæðisins (ESM). Úrskurðurinn var tilkynntur uppúr klukkan átta. Viðskipti erlent 12.9.2012 08:33
Íbúðir orðnar dýrari á Vesturbrú en Austurbrú í Kaupmannahöfn Í fyrsta sinn í á seinni tímum er orðið dýrara að kaupa íbúð á Vesturbrú en á Austurbrú í Kaupmannahöfn. Íbúðir eru eftir sem áður langdýrastar í miðborginni. Viðskipti erlent 12.9.2012 07:42
Moody´s heldur lánshæfiseinkunn FIH bankans í ruslflokki Matsfyrirtækið Moody´s hefur ákveðið að halda lánshæfiseinkunn FIH bankans í Danmörku í ruslflokki. Slíkt eykur ekki líkurnar á að Seðlabanki Íslands endurheimti það sem eftir stendur af sölunni á FIH fyrir tveimur árum síðan. Viðskipti erlent 12.9.2012 06:49
Örlög evrunnar ráðast eftir skamma stund Örlög evrunnar ráðast nú eftir skamma stund en þá mun stjórnlagadómstóll Þýskalands í Karlsruhe kveða upp úrskurð sinn um hvort stöðuleikasjóður evrusvæðisins, svokallaður ESM sjóður, er í samræmist ákvæðum þýsku stjórnarskrárinnar. Viðskipti erlent 12.9.2012 06:45
Ár til stefnu fyrir stjórnvöld annars lækkar lánshæfiseinkunnin Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa um það bil ár til þess að ná betri tökum á ríkisfjármálunum annars mun Moody's lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs úr hæstu einkunn, AAA. Frá þessu er greint á vefsíðu fagtímaritsins Forbes í dag, og er þar vitnað til greiningar frá Moody's. Í henni kemur fram að ef raunhæf áætlun um hvernig megi minnka fjárlagahallann og lækka skuldir ríkissjóðs landsins, verður ekki samþykkt og hrint í framkvæmd fyrir lok næsta árs, þá muni Moody's lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Viðskipti erlent 11.9.2012 16:00
SAS á duldar eignir fyrir tugi milljarða í London Flugfélagið SAS á duldar eignir í London sem eru tug milljarða króna virði. Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk en þar kemur fram að þessar eignir felist í lendingarleyfum, eða svokölluðum "slots", á Heathrow flugvellinum. Viðskipti erlent 11.9.2012 09:40
Danir hvetja Kínverja til að fjárfesta í Danmörku Dönsk stjórnvöld hafa allt aðra afstöðu til kínverskra fjárfestinga en íslensk stjórnvöld. Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra Danmerkur hvetur kínverska fjárfesta til að koma til Danmerkur og segir að þeir séu meir en velkomnir. Viðskipti erlent 11.9.2012 09:20
Álverðið komið yfir 2.000 dollara á tonnið Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli. Verðið er nú komið aftur yfir 2.000 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga og stendur í 2.038 dollurum. Viðskipti erlent 11.9.2012 07:49
Nýjar hagtölur frá Kína valda áhyggjum Nýjar hagtölur frá Kína, sem sýna mun minni vöxt í útflutningi en spáð hafði verið, þykja renna frekari stoðum undir það að ekki sé enn kominn sá tímapunktur að hið alþjóðlega efnahagslíf fari að taka við sér á nýjan leik, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 10.9.2012 12:29
Soros segir Þjóðverjum að hrökkva eða stökkva Hinn þekkti fjárfestir George Soros segir að annaðhvort verði Þjóðverjar sjálfir að yfirgefa evrusvæðið eða sjá til þess að veikari þjóðirnar innan svæðisins fái þá aðstoð sem þær þurfa. Viðskipti erlent 10.9.2012 10:59
Hótar Norðmönnum tollahækkunum á sjávarafurðir þeirra Bendt Bendtsen einn af Evrópuþingmönnum Dana hefur hótað Norðmönnum því að hann muni beita sér fyrir auknum tollum á norskar sjávarafurðir vegna þess að Norðmenn hafa hækkað verulega skatt á innflutningi skrautblóma til landsins. Viðskipti erlent 10.9.2012 06:39
Raftæki öðlast framhaldslíf hjá Grænni Framtíð Gamlir farsímar og tölvur fá framhaldslíf hjá fyrirtækinu Græn Framtíð sem tekur við þeim og selur til viðgerðarfyrirtækja í Evrópu. Stofnandinn segir öryggisvörð næstum því hafa hringt í lögregluna þegar hann sá tugi fartölva í stöflum í stofunni. Viðskipti erlent 9.9.2012 22:00