Viðskipti innlent
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 334 ›
Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Bankaráð Landsbankans segir Bankasýsluna hafa frá sumrinu 2023 hafa verið vel meðvitaða um áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum og eftir atvikum kaupum á tryggingafélaginu TM. Samskiptin hafi farið fram í tölvupóstum, á fundum og símtölum. Helsta óvissan virðist vera um það sem fram kom í óformlegu símtali formanns bankaráðs og stjórnarformanns Bankasýslunnar í desember. Viðskipti innlent 22.3.2024 12:48
Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni. Viðskipti innlent 22.3.2024 09:00
Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis „Þessi aukna vitundarvakning um mikilvægi kynjajafnréttis og aukin eftirspurn eftir samfélagslegum fjármálaafurðum – ábyrgum lausnum og upplýsingum um ófjárhagslega þætti – felur í sér mikil tækifæri fyrir Ísland.“ Viðskipti innlent 22.3.2024 08:01
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. Viðskipti innlent 21.3.2024 22:22
Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Leyfi Domino‘s á Íslandi á vörumerkinu Megaviku rann út í fyrra og sótti fyrirtækið ekki um endurnýjun á tilsettum tíma. Ólafur Friðrik Ólafsson, eigandi Pizzunnar, sá sér leik á borði og sótti um skráningu á vörumerkinu í gegnum hlutafélagið Kjútís. Ekki er enn komin niðurstaða í málið. Viðskipti innlent 21.3.2024 21:45
Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra. Örn Viðar var á meðal 27 umsækjenda um starfið. Félaginu er ætlað að annast uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Viðskipti innlent 21.3.2024 16:19
Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hann hefur setið í stjórninni síðan í ágúst 2022. Viðskipti innlent 21.3.2024 14:47
Eydís og Þorvaldur til Genís Eydís Einarsdóttir og Þorvaldur Ingvarsson hafa verið ráðin til starfa hjá líftæknifyrirtækinu Genís á Siglufirði. Viðskipti innlent 21.3.2024 12:11
Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila. Viðskipti innlent 21.3.2024 08:58
Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? „Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað?“ er yfirskrift vorfundar Landsnets sem fram fer milli klukkan 8:30 og 10 í dag. Viðskipti innlent 21.3.2024 08:00
Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn hafi hitnað í febrúar, en vísitala íbúðaverðs og gögn um fasteignaauglýsingar gefa vísbendingu um aukna virkni og hærra íbúðaverð. Breytingin er mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Viðskipti innlent 21.3.2024 07:48
Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina”, Bretinn Nick Chambers, var í hópi fólks sem heimsótti 5. bekk Landakotsskóla í Reykjavík í gær þar sem spjallað var um starfstækifæri framtíðarinnar, fjölbreytileika og framtíðardrauma nemenda. Auk Chambers heimsótti breski sendiherrann Bryony Mathew og Sævar Helgi Bragason nemendurna. Viðskipti innlent 21.3.2024 07:00
Fyrirtækjum sem gera upp í erlendri mynt fjölgað töluvert síðasta áratug Árið 2022 gerðu 135 fyrirtæki með rekstrartekjur upp í erlendri mynt og nam velta þeirra 1.580.233 milljónum. Þetta kemur fram í svari menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Viðreisnar. Viðskipti innlent 21.3.2024 06:38
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. Viðskipti innlent 20.3.2024 21:35
Bein útsending: Ársfundur Samorku – Ómissandi innviðir „Ómissandi innviðir“ er yfirskrift ársfundar Samorku sem fram fer milli klukkan 13 og 15 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 20.3.2024 12:31
Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en 2027 Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en mögulega árið 2027. Nýtt framboð getur dugað fyrir umfangsmiklum orkuskiptaverkefnum árið 2030 ef því er ekki ráðstafað í önnur verkefni. Þetta, og meira, kemur fram í nýrri orkuspá Orkustofnunar sem gefin var út í dag. Viðskipti innlent 20.3.2024 12:01
Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 20.3.2024 08:51
Seðlabankinn heldur enn stýrivöxtum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent. Viðskipti innlent 20.3.2024 08:30
Aðalfundi Landsbankans frestað Bankaráð Landsbankans ákvað á fundi sínum í dag að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram á morgun. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl. Viðskipti innlent 19.3.2024 13:50
Ráðin innri endurskoðandi Kviku Hugrún Sif Harðardóttir hefur verið ráðin innri endurskoðandi Kviku banka hf. af stjórn bankans og hefur nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19.3.2024 13:47
Vill samskipti Þórdísar við Bankasýsluna upp á borð Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, furðar sig á því að Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekki brugðist við orðrómi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:49
Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:36
Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn hf. Eðvald tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar. Viðskipti innlent 19.3.2024 09:48
Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Upphaf fyrsta brugghússins á Vestfjörðum má rekja til afdrifaríks símtals frá mági framkvæmdastjórans. Hann vann við að múra þegar símtalið kom en mánuði eftir það var brugghúsið orðið að veruleika. Viðskipti innlent 19.3.2024 09:08
Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Dagar hafa ráðið þau Guðfinnu Eyrúnu Ingjaldsdóttur, Brynhildi Guðmundsdóttur, Ísak Erni Kristinsson, Ingigerði Erlingsdóttur og Sigurð Hjaltalín Þórisson í stöður nýrra stjórnenda hjá fyrirtækinu. Þau taka einnig sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins og hafa þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19.3.2024 08:29
KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu KEA hefur keypt 30 prósenta hlut í Ferro Zink hf. af Jóni Dan Jóhannssyni og á eftir viðskiptin allt hlutafé í félaginu, sem er með starfsemi á Akureyri og í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 19.3.2024 08:23
Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bókamarkaðnum á Laugardalsvelli í Reykjavík lauk á sunnudagskvöld og fór svo á endanum að sölumarkmið framkvæmdastjórann náðist. Hundrað þúsund bækur seldust. Viðskipti innlent 19.3.2024 08:19
Bein útsending: Má þetta bara? Samtök atvinnulífsins og Deloitte á Íslandi halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Yfirskrift fundarins er Má þetta bara? Viðskipti innlent 19.3.2024 08:00
Pizza King til sölu á þrettán milljónir Rekstur veitingastaðarins Pizza King, sem staðsettur er við Skipholt 70, er til sölu. Ásett verð eru þrettán milljónir. Viðskipti innlent 18.3.2024 20:11
Engin löndun í bili í Grindavík Ekki verður landað í dag í Grindavík eins og vonir stóðu til um. Hafnarstjóri segir varnargarða þó hafa blásið mönnum byr í brjóst. Fyrirtæki fá að fara inn í bæinn í dag en fyrst stóð til að það yrði ekki leyft. Viðskipti innlent 18.3.2024 14:03