Viðskipti
70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 334 ›
Félag Sverris sem bauð 95 prósenta fasteignalán gjaldþrota Þak, byggingafélag ehf. er gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um það í síðustu viku, og nú eru þeir sem telja sig eiga eignir, skuldir eða önnur réttindi á hendur búinu hvattir til að lýsa kröfum sínum yfir. Viðskipti innlent 30.11.2023 13:31
Skilur reiði fólks en segir tölfræðina tala sínu máli „Það sem að gerðist 1. september var að það var gefin út ný reglugerð af dómsmálaráðuneytinu sem breytir reglunum um það hvernig lánshæfismat er búið til. Og þá er það lagt í hendurnar á fjárhagsupplýsingastofu, sem sagt á okkur, að meta það hvaða vanskilaupplýsingar á að nota. Og kaldur sannleikurinn er sá að ef að fólk hefur lent í því einhvern tímann að borga ekki skuldir sínar til baka, þá er það ólíklegra en aðrir til að borga þær í framtíðinni.“ Viðskipti innlent 30.11.2023 11:04
Sagði forstjóra Disney að fara í rassgat Elon Musk, einn auðugasti maður heims og eigandi Tesla, SpaceX og X (áður Twitter), svo einhver fyrirtæki séu nefnd, sagði forstjóra Disney og forsvarsmönnum annarra fyrirtækja sem hafa hætt að auglýsa á X að „fara í rassgat“. Þetta sagði auðjöfurinn í viðtali sem streymt var í beinni útsendingu en hann sagði einnig að X færi líklega á hausinn án auglýsinga. Viðskipti erlent 30.11.2023 10:56
Fjölmiðlamaður snýr sér að útförum Guðmundur Örn Jóhannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Torgi og sjónvarpsstjóri ÍNN, hefur ákveðið að kveðja fjölmiðlabransann í bili og snúa sér að útförum. Hann hefur gengið til liðs við Úfararstofu Íslands. Viðskipti innlent 30.11.2023 10:18
Neytendasamtökin gagnrýna harðlega framgöngu Creditinfo „Meðferð Creditinfo á viðkvæmum persónuupplýsingum um fjárhag einstaklinga gæti farið á svig við lög og starfsleyfi fjárhagsupplýsingafyrirtækisins, að mati Neytendasamtakanna og VR. Hafa samtökin því sent Persónuvernd erindi þess efnis og óskað eftir flýtimeðferð.“ Viðskipti innlent 30.11.2023 10:09
Hægir verulega á hagvexti Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 30.11.2023 10:06
Birgitta Björg stýrir Into the Glacier Birgitta Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Into the Glacier og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 30.11.2023 08:12
Ofneysla: „Ég vissi hvað var í tísku þegar að ég kom til Íslands“ „Ég vissi hvað var í tísku þegar að ég kom í heimsókn til Íslands. Ef það var einhver flík í tísku, þá voru allar konur í henni og svo framvegis,“ segir Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur og prófessor í Háskóla Íslands, en Vala eins og hún er kölluð, bjó erlendis í þrjátíu ár. Atvinnulíf 30.11.2023 07:00
Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun. Viðskipti innlent 29.11.2023 22:27
Stjórnin hafi hagsmuni allra hluthafa að leiðarljósi Stjórn Marel hefur svarað harðri gagnrýni evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital Partners, sem birti í dag opið bréf til stjórnarformannsins. Stjórnin segist hafa ýtrustu hagsmuni allra hluthafa og annarra hagaðila að leiðarljósi. Viðskipti innlent 29.11.2023 20:38
Norvik eignast 95 prósent í nítján milljarða króna félagi Mikill meirihluta hluthafa í Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði, hefur samþykkt yfirtökutilboð íslenska félagsins Norvik. Norvik á eftir yfirtökuna ríflega 95 prósent hlutafjár í Bergs en átti fyrir um 59 prósent hlut. Viðskipti innlent 29.11.2023 17:41
Fjörutíu prósent þjóðarinnar færðust um áhættuflokk um lánshæfismat Fjörutíu prósent þjóðarinnar færðist um áhættuflokk um lánshæfismat við uppfærslu á matinu hjá Creditinfo sem átti sér stað síðasta fimmtudag. Við uppfærsluna er nú litið til eldri upplýsinga um vanskil einstaklinga, en áður. Viðskipti innlent 29.11.2023 14:48
Verðbólgan hækkar lítillega í átta prósent Verðbólga hefur hækkað lítillega og í nóvember mældist hún átta prósent hér á landi, sé litið til síðastliðinna tólf mánaða. Viðskipti innlent 29.11.2023 14:32
Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Á rauðu ljósi? Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag og er yfirskriftin að þessu sinni Á rauðu ljósi? Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til klukkan 15, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 29.11.2023 12:15
Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur. Viðskipti erlent 29.11.2023 10:29
Nýtni ömmu: „Gömlum jakkafötum var snúið á rönguna og saumuð ný“ „Amma henti aldrei neinu, heldur nýtti allt, gömlum jakkafötum var snúið á rönguna og saumuð ný,“ segir Hrefna Sigurðardóttir vöruhönnuður og annar eigandi Fléttu. Atvinnulíf 29.11.2023 07:01
Tekjur jukust mikið en tapið áfram gríðarlegt Heildarsölutekjur Alvotech fyrstu níu mánuði ársins jukust í 29,8 milljónir dollara, samanborið við 11,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra. Félagið tapaði þó 275,2 milljónum dollara, samanborið við 193,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 28.11.2023 22:46
Landsbankinn selur hlutinn í Keahótelum sem tekinn var upp í skuldir Landsbankinn hefur auglýst 35 prósent hlut sinn í Keahótelum ehf. til sölu. Bankinn eignaðist hlutinn eftir endurskipulagningu félagsins sem fól í sér að skuldum við bankann var breytt í hlutafé. Viðskipti innlent 28.11.2023 21:25
Breytt afkomuspá vegna jarðhræringa: Hlutir hafi verið teknir úr samhengi Flugfélagið Play hefur tilkynnt að afkomuspá fyrir árið eigi ekki lengur við. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á eftirspurn til skemmri tíma orsaki það. Viðskipti innlent 28.11.2023 18:50
ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:15
Þýðingarmikið að sjá líf kvikna í Grindavík Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Arctic Saga, og Jóhann Vignir Gunnarsson sem sér um markaðsmál hjá Þorbirni hf. í Grindavík mættu til vinnu í fiskvinnslu í Grindavík í dag. Þeir segja flesta jákvæða en skjálfta í mörgum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:01
Bein útsending: Nýting á jarðhita í Ölfusdal Orkuveita Reykjavíkur, sveitarfélagið Ölfus og Títan ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu boða til blaðamannafundar í Elliðaárstöð í dag. Viðskipti innlent 28.11.2023 14:07
„Enginn góður kostur í stöðunni“ Fólk flýr í auknum mæli óverðtryggð lán og færir sig yfir í verðtryggð lán samkvæmt nýrri skýrslu. Fjármálaráðgjafi segir verðtryggð lán ákveðna frestun á vandamáli og að engin góður kostur sé í stöðunni. Viðskipti innlent 28.11.2023 13:03
Samkeppnishæf fyrirtæki eru með mannauðsmálin í forgangi Herdís Rós Kjartansdóttir er fyrsti mannauðsstjóri Colas Ísland og hefur gegnt því hlutverki frá árinu 2017. Þar áður hefur Herdís starfað sem mannauðsstjóri Ísafjarðarbæjar og aðstoðarleikskólastjóri. Hún er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og MS gráðu í mannauðsstjórnun frá sama skóla. Samstarf 28.11.2023 11:50
Snjólaug ráðin til Svarma Dr. Snjólaug Ólafsdóttir hefur verið ráðin til Svarma sem leiðtogi vöruþróunar og viðskiptavinatengsla (Chief Product Officer & Client Relations Lead). Viðskipti innlent 28.11.2023 10:55
Ómar Gunnar og Örn til PwC Ómar Gunnar Ómarsson, löggiltur endurskoðandi, og Örn Valdimarsson hagfræðingur hafa verið ráðnir til PwC. Viðskipti innlent 28.11.2023 10:41
Nýtt skip til Grindavíkur fyrir sjómannadag Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík sjósetti nýtt skip, Huldu Björnsdóttur GK-11, á Spáni í gær. Um er að ræða fyrstu nýsmíðina í yfir hálfa öld hjá fyrirtækinu. Stefnt er á að skipið komi siglandi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadag. Viðskipti innlent 28.11.2023 09:05
Mögulegt tilboð ekki í þágu hagsmuna hluthafa Marel Stjórn Marel hefur hafnað óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT Corporation varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. Viðskipti innlent 28.11.2023 07:52
Flestir sem missa vinnuna á Íslandi Flestir þeirra áttatíu starfsmanna Controlant, sem var tilkynnt í morgun að yrði sagt upp störfum, starfa í starfsstöð félagsins á Íslandi. Forstjóri félagsins segir hagræðinguna vegna samdráttar í Covid-tengdum verkefnum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 27.11.2023 16:29
Platinum-tryggingin dekkaði ekki hurð sem fauk upp undir Hafnarfjalli Kona fær ekki endurgreitt frá bílaleigu þrátt fyrir að hafa verið með „Platinum-tryggingu“ sem hún taldi dekka tjón sem hún lenti í. Fær hún því ekki endurgreiddar 230 þúsund krónurnar sem hún óskaði eftir. Neytendur 27.11.2023 15:15