Audi í Þýskalandi 23. júlí 2004 00:01
Audi hefur bestu ímynd allra bílaframleiðenda á þýskum markaði. Þetta er niðurstaða könnunar þýska bílatímaritsins "Auto Zeitung" sem lögð var fyrir rúmlega 30.000 lesendur blaðsins. "Audi hefur ótrúlega mikið forskot. Enginn framleiðandi hefur bætt jafnmiklu við sig og merkið höfðar betur til lesenda okkar en keppinautar þess sem þó njóta velgengni," segja ritstjórar "Auto Zeitung". Audi fær útkomuna 625,6 og slær alveg við tveimur helstu þýsku keppinautum sínum í flokki lúxusbíla. Sá framleiðandi sem næst kemur fékk 516,2 stig og sá í þriðja sæti 493,9 stig. Þessar niðurstöður fengust með vinnslu á svörum við 17 spurningum þar sem lesendur voru spurðir um þau viðmið sem þeir teldu skipta höfuðmáli við kaup á nýjum bíl. Sem dæmi má nefna áreiðanleika og öryggi en líka tilfinningalega þætti á borð við hönnun og sportlega eiginleika.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira