Of þungur í tólf ár 13. október 2005 14:32 "
Ég er búinn að vera með einkaþjálfara í átta mánuði en er nú í mánaðarfríi. Ég er búinn að missa sautján kíló og byggja upp heilmikinn vöðvamassa," segir Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari, aðspurður um það hvernig hann haldi sér í formi. "Ég finn þvílíkan mun á mér. Þegar ég byrjaði hjá einkaþjálfaranum var ég eins og gamall karl. Mesta breytingin sem ég finn er að brennslan er orðin miklu hraðari eftir að ég byrjaði að byggja upp vöðvamassann. Það var orðið þannig með mig áður en ég byrjaði gat ég hvergi keypt mér föt þar sem ekkert passaði á mig. Síðan leið mér mjög illa. Ég var búinn að vera of þungur í tólf ár eða allt frá því að ég var ellefu eða tólf ára. Ég bjó svo nálægt sjoppunni á Dalvík," segir Friðrik og hlær. Margir kjósa þann kost í stöðunni að fá sér einkaþjálfara þegar barist er við aukakílóin og Friðrik ber því góða sögu. "Ég hef prófað allt; Herbalife, Nature´s Own og ég var búinn að prófa að fara einn í ræktina. Það er allt annað þegar einkaþjálfarinn bíður -- þá fer ég frekar. Nú ætla ég einmitt að fara að hringja í stelpuna sem ég er hjá aftur því ég finn að ég fer ekki í ræktina án hennar -- það er alltof erfitt. Aginn er ekki meiri en þetta." Friðrik reynir ekki aðeins að hreyfa sig mikið heldur passar hann að mataræðið sé í góðu lagi líka. "Ég borða skyr á hverjum einasta degi sem eina máltíð. Síðan borða ég líka hrökkbrauð og léttost og drekk alltaf undanrennu. Þetta er reyndar frekar erfitt hjá mér þar sem ég er algjör sælkeri og nammigrís. Ég er til dæmis dottinn í það núna að kaupa mér kökudeig út í búð og baka mér smákökur á átta mínútum og drekka mjólk með. Það er rosalega gott, sérstaklega þegar er svona hlýtt úti. Ég leyfi mér svona hluti en hef fastar þrjár máltíðir á dag þar sem ég hugsa um hvað ég borða." lilja@frettabladid.is
Heilsa Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira