Hann er Corvette, ég er múrveggur 21. desember 2004 00:01
Mikil eftirvænting ríkir fyrir leik Los Angeles Lakers og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta á jóladag en þá munu Shaquille O´Neal og Kobe Bryant mætast í fyrsta sinn síðan O´Neal var skipt til Miami í sumar. Þessir fyrrum liðsfélagar hafa rifist eins og hundur og köttur í fjölmiðlum undanfarna mánuði og O´Neal er með einföld skilaboð til Bryants fyrir leikinn: "Haltu þig fjarri." "Ef þú átt Corvette sem ekur á múrvegg þá veistu hvað gerist," sagði O´Neal í viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina á mánudaginn. "Hann er Corvettan en ég er múrveggurinn þannig að þið vitið hvað gerist." O´Neal bað um að vera skipt til Miami Heat í sumar eftir að hann frétti að Phil Jackson myndi ekki þjálfa liðið á nýjan leik. "Ég frétti það á NBA-síðunni. Áður fyrr var ég yfirleitt fyrstur til að frétta hvað væri í gangi hjá félaginu og þarna skynjaði ég breytingar sem mér leist ekki á," sagði O´Neal sem sagði það bull að leikmenn þyrftu að vera vinir til að vinna meistaratitla. "Fullt af fólki heldur að það þurfi að vera mikill vinskapur til staðar til að árangur náist. Það er ekki rétt og það hefur sýnt sig. Virðingin verður hins vegar að vera til staðar," sagði O´Neal. "Vorum við einhvern tíma nánir? Ekki í raun. Bar ég virðingu fyrir honum sem leikmanni? Að sjálfsögðu gerði ég það," sagði O´Neal en leikur liðanna verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn.
Körfubolti Mest lesið Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Enski boltinn Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Njarðvík leikur í IceMar-höllinni Körfubolti Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Southampton | Sigurlausir nýliðar mæta á Emirates Í beinni: Man. City - Fulham | Meistararnir í vígahug Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Í beinni: Fram - Vestri | Svarar Fram fyrir sig eftir risatapið? Í beinni: Þór/KA - Víkingur | Spila um bronssætið Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund Telur að Thomas sé betri en Basile „Finnst yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum“ Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn Dagskráin í dag: Hvaða lið verður Íslandsmeistari kvenna í fótbolta? Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera Selfoss komið á blað „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Lukaku allt í öllu í sigri Napoli á nýliðunum KR sækir tvo frá Fjölni Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Sveindís Jane og Sædís Rún á skotskónum Guðrún sænskur meistari eftir sigur í Íslendingaslag Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Pogba má spila á nýjan leik í mars 2025 Sjá meira