Góð afslöppun frá daglegu amstri 8. febrúar 2005 00:01 "
Það er skemmtilegt áhugamál og góð afslöppun frá öllu stressi og daglegu amstri að fást við liti og form," segir Rúna þegar farið er að ræða um listina við hana og efnið sem hún kennir í skólanum. "Ég hef þetta í námskeiðaformi þannig að fólk mætir einu sinni í viku í 8-10 vikur. Ég hef byrjendur sér og framhaldsnemendur sér og svo verður oft framhald á framhaldinu því margir eru hjá mér ár eftir ár," segir Rúna sem er til húsa á Látraströnd 7 á Seltjarnarnesi. Hún er með kennsluna á kvöldin, kl. 17 og kl. 20, þrjá til fjóra hópa í viku og kennir listmálun með vatnslitum, akrýllitum og olíulitum auk þess sem teikning er innifalin í námskeiðunum. "Það er nauðsynlegt að hafa hana með," segir hún brosandi og lýsir fyrirkomulagi námskeiðanna nánar. "Í byrjendahópunum kenni ég alla undirstöðu en þegar fólk er búið að vera lengur getur það valið sér myndefni. Þó er ég alltaf með viss verkefni í gangi, við tökum kannski fyrir ákveðin mottó og vinnum út frá þeim. Einnig bendi ég á dæmi í listasögunni til að opna augu fólks fyrir því sem hægt er að gera og við förum alltaf á sýningar einu sinni eða oftar á námskeiðunum svo nemendur kynnist því sem er að gerast í listaheiminum." gun@frettabladid.is
Nám Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira