„Það hafa ekki skapast neinar sérstakar hefðir í kringum páskana hjá okkur, ekki síst vegna þess að við vorum yfirleitt alltaf á skíðum. Mér finnst þó við hæfi að borða fisk á föstudaginn langa og lamb á páskadag,“ segir Kristín. „Ég man að ég fékk oft rauðmaga heima hjá foreldrum mínum í gamla daga, en nú er svo mikið úrval af fiskmeti að ég vel bara það sem er mest freistandi í búðinni hverju sinni. Ég notaði einmitt hlýra í fiskisúpu um daginn og það kom sérlega vel út.“
Kristín segir að mataræði þeirra hjóna hafi alltaf verið hollt og gott, enda eru þau bæði þekkt útivistar- og íþróttafólk og hafa alltaf verið meðvituð um það sem þau láta ofan í sig. „Úrvalið er náttúrlega orðið svo miklu meira núna. Þegar við vorum að byrja að búa var ekki um annað að ræða en epli, appelsínur og banana. Við ræktuðum alltaf okkar eigin kartöflur og borðuðum mikið af rófum og gulrótum, en nú er endalaust úrval og mikið af spennandi hráefni. Við erum með fisk þrisvar, fjórum sinnum í viku og ég léttsteiki gjarnan grænmetið því okkur finnst það betra en hrásalat.“
Kristín segist hafa haft það fyrir sið á seinni árum að fara í páskamessu snemma á páskadagsmorgun og finnst alveg kjörið að bjóða heim í „brunch“ eftir messu. Hún gefur okkur uppskriftir að kræsingunum sem hún er með á sínu morgunverðarhlaðborði. „Svo má ekki gleyma að skreyta páskaborðið með birkigreinum, blómum, kertum og fallegum borðum. Það gerir allt svo hátíðlegt og skemmtilegt,“ segir Kristín.
Dásamlegur páskabröns
Límónuostakaka
Með apríkósum og jarðarberjum.
Botn:
75 g hafrakex
100 g múslí með hnetum
75 g ósaltað, brætt smjör
1 msk. sykur
Kex og múslí mulið og blandað. Smjöri og sykri hrært út í. Blandan sett í smurt smelluform, ca 22 cm. Látið bíða í kæli í eina klukkustund.
Rjómaostakrem
300 g rjómaostur
100 g sykur
3 eggjarauður
2 dl hrein jógúrt
rifinn börkur og safi úr tveimur limeávöxtum
10 blöð matarlím
3 eggjahvítur
2 dl rjómi
Rjómaostur, sykur og eggjarauður þeytt vel saman. Jógúrt, rifnum berki og safa bætt út í. Matarlímið sett í kalt vatn í um það bil fimm mínútur, síðan brætt. Kælt og þeytt í rjómaostakremið. Eggjahvíturnar þeyttar stífar og bætt út í. Rjóminn þeyttur vel og settur saman við. Rjómaostakremið er sett ofan á botninn og látið bíða í ísskáp í þrjá til fjóra tíma. Kakan tekin úr forminu og skreytt.
Skreyting
1 box jarðarber og myntublöð
Amerískar litlar pönnukökur
3 1/2 dl hveiti
1dl heilhveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. natrón
1 tsk. sykur
1 tsk. salt
2 egg
5 dl súrmjólk
4 msk. maísolía
Hveiti og heilhveiti blandað saman með natróni, sykri og salti. Egg, súrmjólk og olía þeytt saman og blandað í heilhveitiblönduna. Bakaðar litlar, þykkar pönnukökur. Bornar fram með reyktum laxi og piparrótarrjóma.
Piparrótarrjómi
2 skalottlaukar
2 1/2 dl sýrður rjómi
1 msk. ferkst dill
2 msk. rifin piparrót
hálf tsk. salt
Laukarnir eru saxaðir smátt og hærðir út í sýrða rjómann ásamt dilli og piparrótinni. Bragðbætt með sítrónusafa.
Páskabrauð
3 1/2 dl hveiti
3 1/2 dl haframjöl, gróft
1 dl hveitiklíð
1 msk. hrásykur
4 tsk. lyftiduft
1/2 dl hörfræ
1/2 l súrmjólk
Öllum þurrefnum blandað saman í skál og hrært með sleif. Súrmjólkin er því næst sett út í. Deigið sett í form og bakað við 200 gráður í 50 mínútur. Skreytt með sólblómafræjum.
Páskaeggjaréttur
500 g sveppir
2 laukar
2 msk. söxuð, fersk steinselja
1 msk. olía
200 g góð skinka
6 msk. grana ostur
6 egg
Sveppirnir eru hreinsaðir og skornir niður ásamt lauknum. Sveppir, laukur og steinselja steikt í olíunni í 2-3 mínútur. Skinkan skorin í bita og blandað í sveppina. Kælt. Eggjahvíturnar þeyttar og öllu blandað saman. Sett í sex smurða ofnfasta diska eða form. Eggjarauðurnar settar í miðjuna og osturinn yfir. Bakað í miðjum ofni í 10 mínútur við 225 gráður á Celcíus.
Ávaxtasalat
2 mangóávextir
5 kíví
2 límónur
mangó og kíví skræld og skorin í báta.
Borið fram með límónum á fallegu fati.
Ávaxtasafi, til dæmis pressuð vatnsmelóna, appelsínur eða ananas og pressukaffi frá Kaffi Tári.
Matur