Vorhreingerning líkamans 12. apríl 2005 00:01 "
Það vilja náttúrlega allir létta aðeins lundina þegar vorið kemur. Á veturna borðar fólk yfirleitt þyngri mat því það er kalt í veðri og með vorinu þarf að taka aðeins til í líkamanum," segir Kolbrún. "Íslenskur þari í duftformi er notaður út í bað og þá er það eins og sjóbað. Ef vatnið er heitt dregur þarinn eiturefnin úr líkamanum eins og hann gerir í sjónum og hreinsar líkamann. Hann gefur líkamanum einnig mikið af steinefnum til baka og þá frískast maður allur. Það er líka mjög gott að setja salt út í baðið því það hefur sömu áhrif. Ég mæli með að fólk setji tvær til þrjár matskeiðar af þaranum út í baðið. Þarabaðið er líka gott þegar maður kemur heim þreyttur og þarf að gera eitthvað um kvöldið en langar ekki til þess. Ef maður skellir sér í þarabað frískast maður við og vill frekar fara út. Þarinn er líka mjög góður fyrir fólk með liðvandamál sem orsakast af því að hluti af hreinsikerfinu er ekki í lagi," segir Kolbrún. "Suttungamjöður er svokölluð "detox"-blanda. Þetta eru jurtir sem hjálpa lifrinni, nýrunum og sogæðakerfinu að hreinsa sig. Mjöðinn er gott að taka í mánuð en það má svo sem nota hann lengur. Mjöðurinn er settur út í soðið vatn og er þetta eins konar vorhreinsidrykkur. Það mega flestir fá sér Suttungamjöð nema óléttar konur," segir Kolbrún, sem tekur því næst fram brenninetluna sem allir mega nota. "Brenninetlan er blóðhreinsandi og hana geta allir tekið; mjög veikt fólk, gamalt fólk, ungt fólk og óléttar konur en úr brenninettlunni er gert te." Talið berst að frjókornaofnæmi sem kviknar oft á sumrin og vill Kolbrún brýna fyrir fólki að búa sig vel undir sumarið. "Það er mjög gott fyrir fólk með frjókornaofnæmi að forðast mjólkurvörur, sykur og þungan mat tveim mánuðum fyrir sumarið. Ylliblóm getur líka hjálpað því það dregur úr slímöndun. Ef fólk fer eftir þessu hættir frjókornaofnæmið annað hvort alveg að gera vart við sig eða minnkar mikið. Það má segja að öll vandamál minnki til muna þegar fólk hreinsar líkamann. Hlutir eins og stress, liðverkir og hausverkir geta minnkað svakalega," segir Kolbrún. Hún talar að síðustu um svokallaða Græna bombu. "Hún inniheldur ekki lækningarjurtir heldur Spírulínu sem er full af járni, amínósýrum og blaðgrænu, bygggrasi, steinselju, rauðrófum og grænu þangi. Allt eru þetta jurtir sem eru mjög ríkar af blaðgrænu en neysla hennar er rétt eins og að taka inn súrefni. Græna bomban er til í duft- og pilluformi og það er hægt að gera te úr henni eða setja út í safa. Það er rosalega gott að taka inn bombuna í duftformi því þá fara öll vítamínin beint í blóðið en oft getur verið erfitt að vinna töflur," segir Kolbrún.
Heilsa Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Fleiri fréttir Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið