Sport

Guðjón Valur með 4 fyrir Essen

Tveir leikir fóru fram í þýska handboltanum í kvöld en tveir Íslendingar voru í sviðsljósinu. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Essen í 33-26 sigri á Post Schwerin. Logi Geirsson skoraði eitt mark úr vítaskoti fyrir Lemgo sem 37-32 sigur á Lubecke. Logi og félagar í Lemgo eru í 4. sæti eftir 27 umferðir í handbolta bundesligunni og Essen í 6. sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×