Íslenski boltinn

Fjölnir fær Ívar Ingi­mars til starfa

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnar Már Guðmundsson hefur fengið Ívar Ingimarsson til aðstoðar með karlalið Fjölnis í fótbolta.
Gunnar Már Guðmundsson hefur fengið Ívar Ingimarsson til aðstoðar með karlalið Fjölnis í fótbolta. Fjölnir

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur ráðið fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanninn Ívar Ingimarsson til starfa sem aðstoðarþjálfara karlaliðs félagsins.

Gunnar Már Guðmundsson hefur verið aðalþjálfari Fjölnis síðustu ár og fagnar því að fá Ívar inn í sitt teymi með alla þá reynslu sem hann býr yfir.

Ívar á að baki 29 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og lék lengi í Englandi sem atvinnumaður, lengst af með Reading en einnig með Ipswich, Brighton, Wolves og Brentford.

Hann hefur á síðustu árum snúið sér að þjálfun og var þjálfari hjá meistaraflokki kvenna á árunum 2024-2025 og svo þjálfari 2. flokks HK síðustu misseri.

„Mun styrkja okkar starf verulega“

„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma til jafn stórs félags og Fjölnis og taka þátt í að koma félaginu aftur þangað sem það á heima. Ég hlakka til að takast á við verkefnið, vinna með Gunnari og leikmannahópnum og leggja mitt af mörkum til að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur,“ segir Ívar í fréttatilkynningu.

„Ég er afar ánægður með að fá Ívar með mér í þjálfarateymið. Reynsla hans, þekking og sýn á leikinn munu styrkja okkar starf verulega. Hann veit hvað þarf til að ná árangri á hæsta stigi og ég er sannfærður um að leikmenn okkar muni njóta góðs af því að vinna með honum,“ segir Gunnar Már sem stýrði Fjölni til 6. sætis í ár í 2. deildinni.

Birgir Örn Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar ráðningunni sömuleiðis:

„Það er mikill fengur fyrir Fjölni að fá Ívar inn í okkar starf. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu úr atvinnumennsku og landsliðinu, en ekki síður sterkum karakter og góðum skilningi á því hvað þarf til að byggja upp leikmenn. Ráðningin fellur mjög vel að þeirri stefnu okkar að efla starfið innan frá og skapa öflugt umhverfi fyrir unga leikmenn félagsins,“ segir Birgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×