Fótbolti

Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda

Sindri Sverrisson skrifar
Munu dómarar hætta að bera gul og rauð spjöld á sér?
Munu dómarar hætta að bera gul og rauð spjöld á sér? Skjáskot

Gulu og rauðu spjöldin í fótbolta gætu brátt heyrt sögunni til og í þeirra stað komið tæki sem sýnir mynd af slíkum spjöldum. Með því geta dómarar strax sent út upplýsingar um hvaða leikmenn hafa verið „spjaldaðir“ sem og um önnur helstu atvik leikja.

Myndir af dómara að sýna leikmanni gult spjald með snjalltæki sem líkist síma hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Þetta var í bikarleik Nacional og Rentistas í Úrúgvæ þar sem Eduardo Varela varð fyrsti dómarinn til þess að nýta svona tæki í stað hefðbundinna gulra og rauðra spjalda.

Úrúgvæska knattspyrnusambandið er í samstarfi við einkafyrirtæki að þróa tæknina þannig að dómarar muni sjálfir geta sent frá sér nákvæmar upplýsingar um spjöld, skiptingar, mörk og víti um leið og atvikin eiga sér stað. Þessum upplýsingum verður svo hægt að miðla áfram til fjölmiðla og á úrslitaveitur.

Það hafa þó komið upp vandamál samkvæmt grein Goal.com og beinast áhyggjur manna sérstaklega að því hvort það sjáist nægilega vel á tækið við öll birtuskilyrði. Við prófanir kom til dæmis í ljós að sterkt sólarljós gerði það nánast ómögulegt að sjá almennilega á skjá tækisins og þó að fyrrnefndur bikarleikur færi fram um kvöld áttu áhorfendur stundum erfitt með að greina spjöldin í tækinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×