Innlent

Rannsókn á öllum einkavæðingum

Forsætisráðherra hefur farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún fylgist sérstaklega með söluferli Landssímans. Formaður Vinstri-grænna segir hins vegar að ítarlega opinbera rannsókn þurfi á öllum einkavæðingum ríkisstjórnarinnar, sérstaklega sölu Búnaðarbankans.  Það er að verða fastur liður í upphafi þingfunda að stjórnarandstæðingar spyrji um sölu Símans og svo var einnig í dag þegar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, varpaði fram spurningum til forsætisráðherra. Halldór Ásgrímsson upplýsti að hann hefði átt fund með ríkisendurskoðanda um að koma að málinu. Hann kvaðst vænta þess að Alþingi treysti sinni eftirlitsstofnun til að hafa eftirlit með málinu, eins og öllum örðum Þetta svar dugði Steingrími ekki. Hann sagði að Ríkisendurkoðun hefði þegar gert úttekt á framkvæmd einkavæðingar stjórnarinnar og gefið henni lága einkunn. Því miður hefði ríkisstjórnin lítið lært af þeirri úttekt. Hins vegar þurfi ítarlega opinbera rannsókn á öllum einkavæðingum ríkisstjórnarinnar, sérstaklega sölu Búnaðarbankans.  Forsætisráðherra brást hart við þessum orðum og spurði hvort Steingrímur treysti ekki lengur Ríkisendurskðun sem eftirlitsstofnun Alþingis. Ef svo væri það alvarlegt mál því stofnunin heyri beint undir Alþingi. „Það er verið að reyna að gera hluti tortryggilega sem hefur verið farið yfir og skýrslum skilað um,“ sagði Halldór. Forsætisráðherra fékk aðra fyrirspurn um Símann frá eigin flokksmanni sem vildi vita hvort til greina kæmi að nota söluandvirðið til samgönguframkvæmda. Athygli vakti að Halldór nefndi sérstaklega eina framkvæmd, Sundabraut, sem hann sagði þurfa að fjármagna sérstaklega og sagði auðvitað koma til greina að ráðstafa hluta af andvirði sölu Símans til framkvæmdarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×