Sport

17 marka sigur á Færeyjum

Kvennalandslið Íslands í handbolta sigraði Færeyjar í dag 31-14 í vináttulandsleik í Færeyjum. Markahæst Íslands var Arna Gunnarsdóttir með fimm mörk. Íris Björk Símonardóttir átti góðan leik í markinu og varði yfir 20 skot. Ísland leikur svo þrjá vináttuleiki gegn Hollendingum á næstu 3 dögum. Á morgun kl. 17:00, mánudag kl. 19:30 og Þriðjudag kl. 19:30, en allir leikirnir fara fram í Ásgarði Garðabæ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×