Sport

Birgir Leifur í 34.-40. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson er í 34.-40. sæti á St. Omer mótinu í golfi í Frakklandi. Birgir er búinn að spila sjö holur í morgun. Hann fékk skolla á annarri holu og nú áðan fór hann sjöundu holuna á þremur yfir pari og er því samtals á tveimur höggum yfir pari. Rétt fyrir hádegi voru sjö  kylfingar jafnir í fyrsta sætinu á fjórum undir pari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×