Sport

Birgir Leifur í 32. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson er í 32.sæti þegar öðrum degi er lokið á opna Texbond mótinu við Garda vatn á Ítalíu í Áskorendamótaröð Evrópu. 153 keppendur hófu keppni. Birgir Leifur var á þremur höggum yfir pari eftir níu holur í morgun en lék stórkostlega seinni níu á 31 höggi. Hann fékk sex fugla og lék á 70 höggum samtals, tveimur höggum undir pari og er samtals á þremur undir pari eftir 36 holur. Birgir Leifur er sjö höggum frá efsta manni mótsins sem er Bretinn Benn Barham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×