Óvíst með Árna Gaut 28. september 2005 00:01
Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Svíum 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingardeildina daginn eftir Svíaleikinn. "Ég ræddi við Árna Gaut í dag [í gær] og við fórum yfir málin. Líklega verður hann með gegn Pólverjum en við verðum að sjá til með Svíaleikinn," sagði Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari við Fréttablaðið eftir að hann og Logi Ólafsson völdu íslenska landsliðið fyrir vináttuleik gegn Pólverjum og leik gegn Svíum í undankeppni HM. Báðir leikirnir eru ytra.Ásgeir sagði að tveir markmenn væru efstir á listanum til að kalla inn í landsliðshópinn ef Árni Gautur verður fjarri góðu gamni, þeir Daði Lárusson hjá FH og Fjalar Þorgeirsson hjá Þrótti. Tveir af okkur bestu leikmönnum, Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson, eru í leikbanni gegn Svíum. Ásgeir segir að hvorugur þeirra hafi beðið um frí í Póllandsleikinn og hann og Logi líti á þann leik sem hreinan undirbúning gegn Svíaleiknum og því hafi verið ákveðið að gefa Eiði og Hermanni alveg frí. Einn nýliði er í íslenska landsliðinu, Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Djurgården í Svíþjóð. Sölvi Geir er fastamaður í U21 árs landsliðinu sem mætir Svíum daginn fyrir A-landsleik þjóðanna."Sölvi Geir nýtist okkur í leikinn gegn Pólverjum og svo er alltaf möguleiki að nýta hann á bekknum gegn Svíum þótt hann hafi spilað daginn áður með ungmennaliðinu. Við höfum fylgst með honum í síðustu leikjum hjá U21 árs liðinu og hann hefur staðið sig virkilega vel. Við vitum að hann hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Djurgården en hann er leikmaður framtíðarinnar og við viljum prófa hann. Það eru stór skörð höggvin í vörnina. Auk Hermanns vantar þrjá tvo menn vegna meiðsla, þá Pétur Marteinsson og Ólaf Örn Bjarnason," segir Ásgeir. Aðspurður um Harald Guðmundsson, leikmann Aalesund, sagði Ásgeir að hann hefði fengið sitt tækifæri en nú væri komið að Sölva Geir að spreyta sig.Að sögn Ásgeirs hefur ekki verið tekin ákvörðun um hver verður fyrirliði í leikjunum í fjarveru Eiðs Smára og Hermanns. Ásgeir viðurkenndi að Árni Gautur væri sterkur kandídat enda hefði hann áður gegnt þeirri stöðu. En hafa Ásgeir og Logi gert það upp við sig hvort þeir gefa kost á sér áfram sem landsliðsþjálfarar þegar undankeppni HM lýkur eftir leikinn í Svíþjóð? "Þetta hefur ekkert verið rætt og við höfum alltaf sagt að við klárum þessa tvo leiki og þá kemur í ljós hvað verður," sagði Ásgeir.Leikurinn gegn Pólverjum fer fram á heimavelli Legia, Wojska Polskiego-leikvanginum í Varsjá, sem var upphaflega byggður árið 1916 og tekur rúmlega 15.000 manns í sæti.Allt stefnir í að uppselt verði á leik Svíþjóðar og Íslands á Råsunda-leikvanginum í Stokkhólmi. Þegar hafa selst 31.000 miðar en leikvangurinn tekur 37.000. Þetta gæti verið úrslitaleikur fyrir Svía að komast á HM í Þýskalandi næsta sumar. Landsliðshópur Íslands Markverðir: Árni Gautur Arason Vålerenga Kristján Finnbogason KR Aðrir leikmenn: Brynjar Björn Gunnarsson Reading Arnar Þór Viðarsson Lokeren Tryggvi Guðmundsson FH Heiðar Helguson Fulham Auðun Helgason FH Indriði Sigurðsson Genk Gylfi Einarsson Leeds Kristján Örn Sigurðsson Brann Veigar Páll Gunnarsson Stabæk Stefán Gíslason Lyn Grétar Rafn Steinsson AZ Alkmaar Kári Árnason Djurgården Gunnar Heiðar Þorvaldsson Halmstad Jóhannes Þór Harðarson Start Bjarni Ólafur Eiríksson Valur Sölvi Geir Ottesen Djurgården
Íslenski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sjá meira