Sport

Bergur með tvö Ís­lands­met á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KA maðurinn Bergur Sverrisson átti góðan dag á HM.
KA maðurinn Bergur Sverrisson átti góðan dag á HM. @bergursverris

KA-maðurinn Bergur Sverrisson setti í morgun Íslandsmet í snörun og samanlögðu í -85 kg flokki karla á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum.

Bergur var að keppa léttari en hann hefur verið áður og segir í frétt á síðu sambandsins að það sé ánægjulegt að hann hafi náð stöðugri og öflugri frammistöðu í nýrri þyngd. Hann jafnaði árangur sinn frá heimsmeistaramótinu í fyrra, þá í gamla -88 kg flokknum.

Besti árangur Bergs á stórmóti er frá Evrópumeistaramótinu 2025 þegar hann lyfti 302 kílóum (140/162).

Bergur byrjaði á því að lyfta 130 kílóum í snörun sem flugu upp. Töluverð bið var áður en hann gat farið í lyftu tvö, sem truflaði aðeins taktinn hjá honum. 

Bergur klikkaði á því að lyfta næstu þyngd, 135 kílóum, en safnaði kröftum og fór upp með sömu þyngd upp í þriðju lyftu. Þetta var einnig Íslandsmet í -85 kg flokki karla. Að snörun lokinni var hann í þriðja sæti af níu keppendum.

Bergur hóf jafnhendinguna á því að reyna við 153 kíló sem fóru ekki upp en dómarar dæmdu lyftuna ekki gilda. Hann lét reyna við sömu þyngd sem flaug upp og í kjölfarið var mikil stemning í íslenska hópnum í stúkunni. 

Í þriðju lyftu setti hann 158 kíló á stöngina og lét vaða. Upp fór stöngin og gleðin leyndi sér ekki hjá Bergi og íslenska hópnum eins og kemur fram í frétt á síðu Lyftingasambands Íslands.

Að jafnhendingu lokinni var hann í fimmta sæti af níu keppendum.

Bergur lyfti samtals 293 kílóum sem er 9 kílóum frá hans besta árangri en nú í léttari þyngdarflokki. Hann setti Íslandsmet í snörun (135 kg) og í samanlögðu (293 kg) og endaði í fjórða sæti af 10 keppendum í sínum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×