Voksne mennesker með fern verðlaun 13. nóvember 2005 22:15
Leikari / leikkona í aðalhlutverkiLeikkona ársins í aðalhlutverki þetta árið er Ilmur Kristjánsdóttir. Ilmur var tilnefnd fyrir leik sinn í Stelpunum. Í umsögn dómnefndar segir: "Ilmur galdrar fram kostulegt persónusafn og kemur sífellt á óvart. Áhrifaríkur gamanleikur, án þess að verða nokkurn tímann áreynslukendur." Leikari / leikkona í aukahlutverkiPálmi Gestsson hlaut EDDU-verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki. Pálmi hlaut tilnefninguna fyrir leik sinn í áramótaskaupinu. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: "Nafnarnir Halldór Laxness og Halldór Ásgrímsson verða sprelllifandi í skopstælingum Pálma, sem virðist geta brugðið sér í allra kvikinda líki." Sjónvarpsmaður ársinsSilvía Nótt eða Ágústa Eva Erlendsdóttir er sjónvarpsmaður ársins að mati Vísisnotenda og þeirra sem fylgdust með beinni útsendingu frá verðlaunahátíð EDDU í kvöld. Forval fór fram hér á Vísi og þá kannaði IMG Gallup einnig hug landsmanna. Í kvöld fór svo fram SMS-kosning milli þeirra fimm einstaklinga sem hlutu flestar tilnefningar á Vísi og hjá Gallup og varð Silvía Nótt hlutskörpust í þeirri kosningu. Skemmtiþáttur ársinsSjáumst með Silvíu Nótt er skemmtiþáttur ársins að mati dómnefndar ÍKSA. "Einstæð leiktúlkun Ágústu Evu Erlendsdóttur í hlutverki Silvíu Nótt. Traust persónusköpun, frumlega framsettur boðskapur og gagnrýni ásamt snarpri og margræðri kvikmyndavinnslu eru ástæður þess að Sjáumst með Silvíu Nótt er tilnefnd til edduverðlauna. Þrátt fyrir að finna megi fyrimyndir eru þættirnir einstaklega frumlegir og bera hugmyndaflugi íslenskra listamanna gott vitni," segir í umsögn dómnefndar. Sjónvarpsþáttur ársins:Sjálfstætt fólk Jóns Ársæls og Steingríms Jóns Þórðarsonar er sjónvarpsþáttur ársins. "Við fáum ekki leið á Sjálfstæðu Fólki. Jóni Ársæli og Steingrími sýna okkur innilegar nærmyndir af einstöku fólki í hverjum þættinum af fætur öðrum. Lengi megi þeir kappar halda áfram að gera gott sjónvarpsefni," segir dómnefnd um Sjálfstætt fólk. Heimildamynd ársinsAfrica United eftir Ólaf Jóhannesson er heimildamynd ársins að mati Vísisnotenda og dómnefndar ÍKSA, íslensku kvikmynda- og sjónavarpsakademíunnar. Um myndina segir dómnefnd: "Skemmtileg mynd um fótboltalið í þriðju deild. Fjölbreytt persónugalleríið lifnar á tjaldinu og ástríða þjálfarans og leikmannanna smitar áhorfandann. Myndin er vel unnin á allan hátt og sagan gengur upp í lok myndarinnar." Handrit ársinsDagur Kári Pétursson og Rune Schött hlutu EDDU fyrir handiritið í myndinni Voksne Mennesker. Dómnefnd segir eftirfarandi um handritið: "Handritið er stútfullt af óborganlegum senum og hugmyndum sem bæta upp fyrir brotakenndan söguþráðinn. Vel skrifuð og á köflum drepfyndin samtöl. Höfundarnar vinna markvisst með efniviðinn svo úr verður sterk saga sögð með áreynslulitlum og skemmtilegum hætti." Kvikmynd ársins:Voksne Mennesker er kvikmynd ársins að mati dómnefndar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. "Heillandi lýsing á þroskaferli iðjuleysinga. Persónusköpun frumleg með skemmtilegri áherslu á smáatriði. Myndin vekur til umhugsunar og persónurnar vekja samúð hjá áhorfandanum. Kvikmyndataka er góð og annað útlit myndarinnar skemmtilega stílfært. Vel leikin kvikmynd sem heillar með sterkri stemmingu, hvíld og vissu látleysi," segir dómnefnd um Voskne Mennesker. Leikstjórn ársins:Dagur Kári Pétursson hlýtur EDDU-verðlaun í ár sem leikstjóri ársins fyrir mynd sína Voksne Mennesker. Umsögn dómnefndar: "Dagur Kári skapar mjög sérstakt og leiftrandi ljóðrænt andrúmsloft með mynd, tónlist og leik og tekst afar vel að nýta sér styrk einfaldleikans í frásögn sinni. Hann er óhræddur við að brjóta hefðir og margar senur í myndinni eru afgreiddar á ógleymanlegan hátt." Leikið sjónvarpsefni ársinsStelpurnar hlutu EDDU-verðlaun í flokknum leikið sjónvarpsefni ársins. Í umsögn dómnefndar segir m.a.; "Grínþáttur með stuttum bröndurum sem er vel unnin í alla staði. Grafík, kvikmyndataka og tónlist skapa skemmtilega umgjörð og stemmningu. Áhersla er lögð á hraða og vandaða tæknivinnu. Leikur til fyrirmyndar." Tónlistarmyndband ársinsCrazy Bastard í flutningi strákanna í 70 mínútum og Quarashi er tónlistarmyndband ársins. Umsögn dómnefndar: "Leikstjórn, leikur og tæknileg útfærsla sannfærandi þó efnistök séu ekki ný af nálinni." Myndataka og klipping"Þetta er heiður - takk fyrir mig"; sagði Bergsteinn Björgúlfsson þegar hann tók við EDDU-verðlaununum fyrir myndatöku í Gargandi snilld. "Myndatakan er gargandi snilld. Listræn og fagleg vinnsla konfekt fyrir augað," sagði í umsögn dómnefndar. Stuttmynd ársins:Töframaðurinn er stuttmynd ársins. Leikstjóri hennar er Reynir Lyngdal, handrit skrifaði Jón Atli Jónasson en framleiðendur voru Hrönn Kristinsdóttir og Snorri Þórisson. Umsögn dómnefndar; "Draumkennd og áhrifarík lýsing á heimi barns sem býr við ofbeldisfullar heimilisaðstæður. Falleg kvikmyndataka, lýsing og leikmynd. Sterk stemmning myndast með vel heppnaðri tónlist, góðum leik og einfaldri en áhrifaríkri sögu." Hljóð og tónlistDagur Kári Pétursson tók við EDDU-verðlaunum fyrir tónlist í mynd sinni Voksne Mennesker. Umsögn dómnefndar: "Frumleg og vönduð tónlist sem gegnir veigamiklu hlutverki í að skapa andrúmsloft myndarinnar ekki síst er notkunin á tónlist Bachs vel heppnuð. Hljóð gott og skapar stíl." Útlit myndar:Brúðugerðin í Latabæ hlaut EDDU í flokknum útlit myndar. Dómnefnd segir brúðurnar stórkostlegar, lifandi og skemmtilega persónuleika. Hvatningarverðlaun Landsbanka Íslands:Hið ljúfa líf, stuttmynd eftir Elvar Gunnarsson, hlaut hvatningarverðlaun Landsbanka Íslands. Handritið skrifuðu Elvar Gunnarsson, Kristinn Þeyr Magnússon, Oddný Helgadóttir og Anton Máni Svansson. Myndin fjallar um tvær einmana sálir sem hittast fyrir tilviljun á jóladag og komast að því að þau eiga ýmislegt sameiginlegt þrátt fyrir að vera ólíkir einstaklinga. "Hið ljúfa líf er heilsteypt og skemmtileg mynd þar sem góður leikur, einlægt og sannverðugt handrit liggja til grundvallar metnaðarfullri vinnsluaðferð," segir m.a. í umsögn dómnefndar.
Eddan Menning Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Menning Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira