Erlent

Segja ísraelska gíslinn á lífi

Gilad Shalit, ísraelski hermaðurinn
Gilad Shalit, ísraelski hermaðurinn

Ísraelski hermaðurinn sem numinn var á brott af herskáum Palestínumönnum síðastliðinn sunnudag er á lífi og í bærilegu ástandi að sögn palestínsks embættismanns. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sagði í gærkvöldi að næstu klukkustundir myndu skipta sköpum í deilunni milli ísraelskra og palestínskra stjórnvalda.

Ísraelskir hermenn og vopnaðir Palestínumenn skiptust á skotum í marga klukkutíma í gær þegar ísraelskir skriðdrekar og jarðýtur fóru yfir landamærin við Gaza-svæðið og hófu að eyðileggja beitiland austan við bæinn Khan Younis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×