Erlent

Sagðir nauðga og myrða

hermaður Bandarískur hermaður í Írak. Maðurinn tengist fréttinni ekki.
hermaður Bandarískur hermaður í Írak. Maðurinn tengist fréttinni ekki. MYND/AP

Fimm bandarískir hermenn sæta nú rannsókn vegna ásakana um að hafa nauðgað ungri konu í Írak og drepið hana svo ásamt þremur fjölskyldumeðlimum hennar, að sögn talsmanna Bandaríkjahers.

Hermönnunum er gert að hafa brennt lík konunnar að verknaðinum loknum, sem á að hafa átt sér stað að kvöldi dags sunnan Bagdad í mars. Einn hermannanna er sagður hafa játað glæpinn, sem varð til þess að hann uppgötvaðist. Sá hefur verið handtekinn.

Talsmennirnir voru fámálir um rannsóknina, sem kemur sér afar illa fyrir herinn, því bandarískir hermenn sæta nú þegar ýmsum ásökunum um illa meðferð á óbreyttum íröskum borgurum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×