Erlent

Biður Íslendinga að íhuga stöðu Ísraela

Miryam Shomrat Sendiherra Ísraels á Íslandi með aðsetur í Ósló. fréttablaðið/Vilhelm
Miryam Shomrat Sendiherra Ísraels á Íslandi með aðsetur í Ósló. fréttablaðið/Vilhelm MYND/Vilhelm

Ísrael Miryam Shomrat, sendiherra Ísraels, segir íslenska stjórnmálamenn sem hún ræddi við í gær og fyrradag einblína um of á „atvikið í Beit Hanoun“ í síðustu viku, þar sem nítján óbreyttir borgarar, þar á meðal konur og börn, létu lífið í árás Ísraelshers á Gaza. Árásinni var annars beint gegn skæruliðum Palestínumanna sem stunda það að varpa sprengjum yfir landamærin.

Það leyndi sér annars ekki í gær að Ísraelsher hefði orðið lítið ágengt í að stöðva slíkar árásir frá Gaza, er að minnsta kosti sjö sprengiflaugum var varpað yfir landamærin. Ein sprengjan lenti í miðbæ Sderot, rétt hjá heimili ísraelska varnarmálaráðherrans, og banaði einni konu og særði ungan karlmann alvarlega. Að sögn AP-fréttastofunnar var þetta fyrsta dauðsfallið sem slíkar sprengiflaugaárásir Palestínumanna frá Gaza hafa valdið í Ísrael frá því í septem-ber í fyrra.

Sendiherrann segir að ísraelsk stjórnvöld harmi mjög það sem gerðist í Beit Hanoun og ítrekar að „að sjálfsögðu beinir Ísraelsher vopnum sínum ekki vísvitandi að óbreyttum borgurum“, öfugt við palestínsku skæruliðana sem beini árásum sínum nær eingöngu að ísraelskum borgurum.

Shomrat segir erindi sitt til Íslands nú aðallega hafa verið að koma þessum sjónarmiðum á framfæri og biðja Íslendinga, sem vinveitta lýðræðisþjóð, að íhuga þá aðstöðu sem Ísrael væri í og hvernig ísraelskum stjórnvöldum bæri skylda til að gera það sem í þeirra valdi stæði til að reyna að tryggja öryggi íbúa landsins.

Sendiherrann skorar enn fremur á Íslendinga og aðrar þjóðir alþjóðasamfélagsins til að láta ekki af þrýstingnum á palestínsk stjórnvöld fyrr en þar er til valda komin stjórn sem uppfyllir þessi þrjú meginskilyrði: viðurkenni Ísraelsríki, viðurkenni þá samninga sem áður hafa verið gerðir milli Ísraels og Palestínumanna, þar á meðal Óslóarsamkomulagið svonefnda, og loks í þriðja lagi sverji af sér beitingu ofbeldis til að ná fram markmiðum sínum.

Shomrat biður jafnframt allar þjóðir heims, sem styðja tilverurétt Ísraels, að taka höndum saman um að hindra að Írönum takist að koma sér upp kjarnorkuvopnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×