Erlent

Sex Pólverjar handteknir

Sex manns voru handteknir í Strømmen í Noregi seint á sunnudagskvöld, grunaðir um að hafa stungið 24 ára gamlan mann mörgum sinnum í maga og brjóstkassa. Maðurinn er enn á gjörgæslu en er talinn úr lífshættu.

Hinir handteknu eru á aldrinum 35 til 43 ára. Fimm þeirra voru handteknir í bíl við heimahúsið þar sem árásin átti sér stað, en sá sjötti var gripinn á staðnum.

Allir eru mennirnir pólskir ríkisborgarar, kemur fram í frétt Aftenposten af málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×