Erlent

Frekari varnarviðbúnaður óþarfur

Að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, er engin þörf á því að leita eftir því við NATO og grannþjóðirnar að sjá Íslendingum fyrir frekari varnarviðbúnaði eftir brottför varnarliðsins.

Steingrímur segir að í orðum forsætisráðherra „veki mikla athygli að þar er í raun verið að segja að þessi samningur við Bandaríkin sé ekki fullnægjandi“.

Hann hafi heldur enga trú á því að hvorki Danir „né þaðan af síður Norðmenn fari að taka á sig neinn kostnað vegna slíkra skuldbindinga“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×