Erlent

Fastur í vatnsstokk í fimmtíu tíma

Mynd/AP

Ungur indverskur drengur átti heldur eftirminnilegan afmælisdag í gær þegar honum var bjargað úr vatnsveitustokk, eftir um fimmtíu tíma dvöl í prísundinni. Drengurinn átti sex ára afmæli og var að leik í heimabæ sínum Aldeharhi, þegar hann féll niður í stokkinn. Það reyndist þrautin þyngri að ná drengnum upp og eftir árangurslausar björgunartilraunir þorpsbúa og lögreglu var leitað eftir aðstoð hersins. Það tók hermennina 50 tíma til að grafa leið að drengnum en aðstæður til björgunar voru mjög erfiðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×