Erlent

Dularfulla löggan

Þýsku lögregluþjónarnir héldu að þá væri að dreyma, þegar vel merktur amerískur lögreglubíll renndi fram úr þeim á hraðbrautinni. Við stýrið sat amerískur lögregluþjónn, með kaskeyti og Smith&Wesson skammbyssu.

Þeim þótti rétt að kanna málið og stöðvuðu ameríkanann. Hann var reyndar þýskur bílasafnari sem var að fara að selja þennan þrjátíu ára gamla ameríska lögreglubíl, í næstu borg. Hann hafði farið í einkennisbúninginn til þess að skapa stemmingu, og skammbyssan var eftirlíking.

Þýsku löggurnar fylgdu þessum starfsbróður sínum í næstu fataverslun, þar sem hann gat keypt sér gallabuxur og bol í staðinn fyrir einkennisbúninginn. Þeir gerðu leikfangabyssuna upptæka og svo fékk hann að halda áfram. Reyndar ekki alveg eins upplitsdjarfur og þegar hann lagði af stað að heiman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×