Erlent

"Legóið eða lífið!"

Legó er greinilega mjög skemmtilegt og dró stúlkuna ungu á afbrotabrautina.
Legó er greinilega mjög skemmtilegt og dró stúlkuna ungu á afbrotabrautina. MYND/Vísir

Lögregla í Flórída leitar nú að lítilli stúlku, sjö eða átta ára gamalli, sem otaði 25 sentrimetra löngum hníf að starfsmanni dótabúðar í þann mund sem hann reyndi að koma í veg fyrir að hún rændi tveimur kössum af Legókubbum.

Starfsmaður Wal-Mart sá stúlkuna labba að dyrunum með Legókassana innan á sér en þegar hann sagði henni að stoppa tók hún hnífinn úr úlpu sinni og otaði að manninum. Honum tókst þó að lokum að telja stúlkuna á að láta hnífinn og Legókassana frá sér en áður en hann náði henni komst hún út og hjólaði í burtu.

Fréttavefurinn Ananova.com skýrði frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×