Erlent

Castro lét ekki sjá sig

Fidel Castro, forseti Kúbu
Fidel Castro, forseti Kúbu MYND/AP

Mikilli hersýningu í tilefni af áttatíu ára afmæli Fidels Castro, er nú lokið á Kúbu án þess að leiðtoginn léti sjá sig. Með réttu eða röngu var litið á það sem mælikvarða á heilsu forsetans, og pólitíska framtíð, hvort hann myndi mæta eða ekki.

Castro hefur ekki komið fram opinberlega síðan hann gekkst undir mikla skurðaðgerð í júlí síðastliðnum. Hann hefur þó sent frá sér ljósmyndir og yfirlýsingar, þar sem hann segist vera hinn brattasti, og brátt snúa aftur til starfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×