Erlent

Laug til um krabbamein

Einstæð móðir frá Wisconsin í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist fyrir að skrökva að vinum og samstarfsmönnum að hún væri með ólæknandi krabbamein. Samúðarfullir vinir söfnuðu þúsundum Bandaríkjadala, meðal annars með samkomuhaldi og blaðaauglýsingum, til að aðstoða konuna við að greiða fyrir lækniskostnað sinn. Konan gekk meira að segja svo langt að raka af sér hárið til að láta líta út fyrir að hún hefði gengist undir lyfjameðferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×