Pinochet við dauðans dyr 3. desember 2006 09:59
Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, liggur á milli heims og helju eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall í nótt. Pinochet hefur lengi verið heilsuveill þannig að fréttirnar um hjartaáfallið þurfa kannski ekki að koma mjög á óvart. Líðan hans er sögð stöðug en alvarleg. Pinochet var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 en hún ríkti allt til ársins 1991. Á meðan ógnarstjórn hans var við völd voru yfir 3.000 manns myrtir, eða látnir hverfa. Talið er að allt að 28.000 manns hafi sætt pyntingum og misþyrmingum leynilögreglu landsins. Margsinnis hefur verið reynt að draga Pinochet fyrir dóm en hann hefur aldrei þurft að svara fyrir mannréttindabrot sín þar sem lögfræðingum hans hefur ávallt tekist að sannfæra dómara um að hann sé of veikur til að þola réttarhöld. Að undanförnu hefur hann setið í stofufangelsi í Santíagó, höfuðborg Chile. Þegar hann varð 91 árs fyrir rúmri viku gaf hann út yfirlýsingu þar sem hann sagðist taka pólitíska ábyrgð á ofbeldinu sem var framið í stjórnartíð hans. Hann hefði hins vegar einungis verið knúinn af þrá til að gera Chile að stórkostlegu landi og koma í veg fyrir að það liðaðist í sundur.
Erlent Fréttir Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira