Völdum rænt í fjórða sinn á 19 árum 5. desember 2006 13:15 Frank Bainimarama, herforingi og leiðtogi valdaránsmanna, á blaðamannafundi í Suva, höfuðborg Fídji-eyja, í dag. MYND/AP
Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Forseti Fiji-eyja segist ekki styðja valdaránsmenn. Þetta er í fjórða sinn á 19 árum sem völdum er rænt á Fídji-eyjum. Fyrir valdaránsmönnum fer Frank Bainimarama, hershöfðingi, sem hefur eldað grátt silfur við Laisenia Qarase, forsætisráðherra, síðustu mánuði, meðal annars vegna ákvörðunar þess síðarnefnda að náða þá sem rændu völdum á eyjunum fyrir sex árum. Bainimarama hefur tekið sér völd forseta að hluta en heitið því að afsala sér þeim í næstu viku aftur til Ratu Josefa Iloilo. Bainimarama hefur rekið forsætisráðherrann og hneppt hann í stofufangelsi og er búist við að Iloilo skipi bráðabirgðastjórn í næstu viku og síðan yrði aftur kosið til þings. Bainimarama segir aðgerðir hersins samræmast lögum á Fídji-eyjum og hann hafi orðið að grípa til þessa úrræðis þar sem forsætisráðherrann væri að grafa undan stjórnarskrá landsins. Þrátt fyrir yfirlýsingu Bainimarama er haft eftir Iloilo forseta að hann styðji ekki aðgerðir hersins. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í morgun að hann harmaði atburðina á Fídji-eyjum og útilokaði hernaðaraðgerðir af hálfu Ástrala.
Erlent Fréttir Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira