Erlent

Madonna hannar fyrir H & M

Madonna ásamt Jean Paul Gaultier í kjól sem hann gerði fyrir hana. Nú er hún sjálf að fara að hanna föt.
Madonna ásamt Jean Paul Gaultier í kjól sem hann gerði fyrir hana. Nú er hún sjálf að fara að hanna föt. MYND/Time Life

Poppstjarnan Madonna hefur tekið að sér að hanna fatalínu fyrir sænska tískurisann Hennes & Mauritz. Föt Madonnu eiga að koma á markað í öllum verslunum fyrirtækisins í mars á næsta ári.

Hennes & Mauritz hefur einnig ráðið Karl Lagerfeld og Stellu McCartney til þess að hanna föt.

Madonnu er greinilega margt til lista lagt. Fyrir utan að syngja og leika í kvikmyndum (með umdeildum árangri) hefur hún skrifað vinsælar barnabækur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×