Erlent

VRRRÚÚMMMM

Skrúðvagnar eru vinsælir í skrúðgöngum, í Bandaríkjunum. Þeir eru gjarnan fullir af fögrum meyjum, eða þá einhverjum fígúrum. Pallbílar eru gjarnan notaðir í þessum tilgangi. Ökumaður eins slíks var í gær handtekinn fyrir ölvun við akstur.

Eðli málsins samkvæmt eru skrúðgöngur hægar og virðulegar. Pallbílstjóranum þótti þó ganga einum of hægt í jólaskrúðgöngunni, að þessu sinni. Hann gaf í botn og geystist framúr hinum skrúðvögnunum, tók svo vinstri beygju svo ískraði í hjólbörðunum og þeysti niður aðalgötuna. Hann skeytti ekkert um skrækjandi stúlkurnar á pallinum.

Sem betur fór tókst lögreglunni að stöðva hinn góðglaða bílstjóra áður en hann olli slysi. Hann mun hinsvegar hafa aðeins minna umleikis um jólin, vegna sektarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×