Erlent

Óttast raðmorðingja vændiskvenna

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/AP

Breska lögreglan óttast að raðmorðingi, ámóta og hinn illræmdi Jack The Ripper, herji á vændiskonur í Ipswich í austurhluta landsins. Þrjár vændiskonur hafa fundist myrtar þar síðastliðna níu daga. Hinnar fjórðu er saknað og lögreglan telur ástæðu til þess að hafa áhyggjur af öryggi hennar.

Lögreglan hefur hvatt vændiskonur til þess að fara varlega en talskona þeirra segir að fæstar þeirra hafi efni á að gera hlé á störfum sínum svona rétt fyrir jólin.

Lögreglan hefur hert eftirlit í rauða hverfinu í Ipswich, og sálfræðingar hafa verið kvaddir til að reyna að draga upp mynd af morðingjanum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×