Erlent

Tvær bílsprengjur í Bagdad

Að minnsta kosti 54 týndu lífi og um 140 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu nærri hóp farandverkamanna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Innanríkisráðuneytið íraska greinir frá þessu.

Verkamennirnir höfðu safnast saman á torgi í miðri borginni og biðu þess að komast til vinnu. Önnur bifreiðin mun hafa verið kyrrstæð nærri mönnunum en hinni var, að sögn vitna, ekið inn í miðjan hópinn áður en ökumaður sprengdi hana í loft upp. Síðan var skotið á mennina úr launsátri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×