Erlent

Eiturlyfjafíkn var óttanum yfirsterkari

Þótt mikill ótti ríki meðal vændiskvenna í Ipswich, eftir morðin á fimm starfssystrum þeirra, halda þær áfram að falbjóða sig á götum úti. Lögreglan hefur aukið eftirlit í hverfi þeirra, en virðist ekki geta komið í veg fyrir að þær haldi áfram starfi sínu.

Ástæðan er sú að þær eru allar eiturlyfjafíklar og vilja frekar hætta lífi sínu en hafa ekki efni á að fá sér næsta skammt. Allar konurnar fimm, sem hafa þegar verið myrtar vogu háðar eiturlyfjum, og héldu áfram að leita að viðskiptavinum þótt þeim væri hættan ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×