Erlent

Svaf vært á teinunum

Breskur maður á yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsisdóm eftir að hann sofnaði á lestarteinum fyrr á þessu ári. Lögreglumenn í eftirlitsflugi festu manninn á filmu þar sem hann svaf áfengisdauða á teinum nærri Epsom í Surrey-héraði. Furðu sætir að hann hafi ekki fengið raflost eða orðið fyrir lest en lögregla segir að aðeins hafi munað þar fáeinum mínútum. Umferð var stöðvuð um teinana um leið og uppgötvaðist að maðurinn lá þar. Hann var svo fluttur á sjúkrahús í nágrenninu þar sem í ljós kom að áfengismagnið í blóði hans var við lífshættuleg mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×