Grunaður um morð á 5 vændiskonum 18. desember 2006 18:45
Breska lögreglan handtók í dag 37 ára karlmann sem grunaður er um að hafa myrt 5 vændiskonur í Suðaustur-Englandi. Morðingjans hefur verið leitað síðan í síðustu viku og rannsóknin er ein sú viðamesta í Bretlandi um áraraðir. Það var í morgun sem lögreglan í Suffolk greindi frá því að maður hefði verið handtekinn vegna málsins. Stewart Gull, yfirlögregluþjónn, sagði á blaðamannafundi að lögregla hefði handtekið 37 ára karlmann á heimili sínu í Trimley nærri Felixstowe. Hann væri grunaður um að hafa myrt allar konurnar fimm. Lögregla hefur ekki viljað greina frá nafni mannsins, en breskir fjölmiðlar hafa gert það og birt myndir af honum. Breska blaðið Sunday Mirror birti í gær viðtal við manninn, Tom Stephens, þar sem hann segir að hann hafi þekkt allar konurnar fimm og hafi enga fjarvistarsönnun í málinu. Stephens mun hafa skilið við konu sína fyrir nokkru síðan og leitað eftir þjónustu vændiskvenna í Ipswich. Lögregla hafði yfirheyrt hann og gert húsleit heima hjá honum áður en blaðamaður Mirror náði tali af honum. Nágrannar Stephens eru slegnir vegna málsins. Grunur leikur einnig á að Stephens tengist morði á sautján ára stúlku í smábæ nærri Ipswich fyrir sjö árum. Lögregla hefur þó ekki viljað staðfesta það.
Erlent Fréttir Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Sjá meira