Erlent

Gerald Ford horfinn á vit feðra sinna

Gerald Ford lýsir því yfir að hann ætli að gefa Richard Nixon upp sakir.
Gerald Ford lýsir því yfir að hann ætli að gefa Richard Nixon upp sakir. MYND/AP

Gerald Ford, þrítugasti og áttundi forseti Bandaríkjanna, andaðist í gær, 93 ára að aldri. Ford gegndi þessu valdamesta embætti heims á erfiðum tímum fyrir bandarískt samfélag. Hans er helst minnst fyrir að hafa aldrei verið kosinn af þjóð sinni og gefið forvera sínum, Richard Nixon, upp sakir.

Enginn Bandaríkjaforseti hefur náð hærri aldri en Gerald Ford en hann var 93 ára og 122 daga gamall þegar hann andaðist. Hann hafði átt við ýmis konar veikindi að stríða síðustu æviárin en ekki hefur verið greint frá því úr hverju hann dó. Valdatíð Geralds Fords var ekki ýkja löng en hún var engu að síður allmerkileg, sérstaklega fyrir þá sök að hann komst í þetta valdamesta embætti heims án þess að hafa nokkru sinni fengið til þess umboð frá bandarísku þjóðinni. Hann varð varaforseti Richards Nixon árið 1973 þegar Spiro Agnew varð að segja af sér vegna spillingarmála. Þegar svo Nixon flæktist sjálfur í eigin spillingarvef vegna Watergate-hneykslisins var leiðin greið fyrir Ford í forsetaembættið.

Ólíkt Nixon var Ford hrósað fyrir hreinskilni, jákvæðni og heiðarleika og í forsetatíð hans viðurkenndu Bandaríkjamenn loks ósigur sinn í Víetnamstríðinu. Það vakti hins vegar talsverða úlfúð þegar hann gaf Nixon upp sakir og hefur sá gerningur að líkindum átt stóran þátt í að hann tapaði forsetakosningunum 1976 fyrir Jimmy Carter. Á síðari árum bar lítið á Ford en eiginkona hans, Betty, hefur hins vegar uppskorið athygli og virðingu, meðal annars fyrir að koma á fót meðferðarstofnun sem við hana er kennd. George Bush Bandaríkjaforseti fór fögrum orðum um forvera sinn í dag.

Nú eru einungis þrír fyrrverandi Bandaríkjaforsetar enn á lífi, Jimmy Carter, George Bush eldri og Bill Clinton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×