Erlent

Dæmdur fyrir mörg þúsund nauðganir

Norskur maður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fósturdóttur sinni mörgþúsund sinnum. Árásirnar hófust þegar hún var tólf ára og stóðu þartil hún var tvítug. Maðurinn er 46 ára gamall.

Meðan stúlkan var á barnsaldri nauðgaði maðurinn henni þrisvar til fjórumsinnum í viku, og einusinni til tvisvar í viku á síðari árum. Stúlkan var ættleidd erlendis frá og fósturfaðirinn hótaði að senda hana aftur til heimalandsins, ef hún þegði ekki yfir árásum hans.

Auk þess að vera dæmdur í fangelsi var manninum gert að greiða tvær milljónir króna í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×