Erlent

Heather Mills fær ekki eyri

Mills og McCartney.
Mills og McCartney. MYND/AP

Fyrirsætan fyrrverandi Heather Mills mun ekki ríða feitum hesti frá skilnaðinum við Sir Paul McCartney, ef lögfræðingar hans fá einhverju um ráðið. Þeir hafa lagt fram rök fyrir því að Mills eigi ekki að fá eyri við skilnaðinn.

Í röksemdarfærslum lögfræðinganna segir meðal annars að Sir Paul hafi verið búinn að afla allra auðæva sinna löngu áður en hann og Heather hittust.

Í öðru lagi hafi hann beinlínis tapað peningum þau fjögur ár sem þau voru gift. Það hafi einkum verið vegna tónlistarferðalags hans um heiminn, sem hafi verið rekið með tapi.

Í þriðja lagi hafi Heather stórlega ofmetið eignir bítilsins, þegar hún lagði fram kröfu sína um fimm milljarða króna.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×