Erlent

Skökk Sidney

Tóbí var alveg hissa á því hvað það var skítkalt í Ástralíu.
Tóbí var alveg hissa á því hvað það var skítkalt í Ástralíu.

Tóbí Gutt var fullur tilhlökkunar þegar lagði upp frá Þýskalandi til þess að heimsækja kærustuna sína, sem býr í stórborginni Sydney, í Ástralíu. Hann hafði fundið ótrúlega hagstætt fargjald, á netinu. Það er sumar í Ástralíu á þessum árstíma og hann var því klæddur í stuttermabol og stuttbuxur.

Tóbí svaf mestalla ferðina en svo lenti vélin og hann fór frá borði til þess að ná í tengiflugið sitt til Sydney. Hann var dálítið hissa á því hvað það var skítkalt í Ástralíu.

Hann hætti þó að vera hissa á kuldanum þegar hann uppgötvaði að sú Sydney sem hann var að fljúga til er 5000 manna olíubær í Montana í Bandaríkjunum.

Tóbí ku ætla að vanda sig betur, næst þegar hann pantar flugfar á netinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×