Erlent

Hefðu farið öðruvísi að

Kalt stríð er skollið á milli Bandaríkjamanna og forsætisráðherra Íraks. Ráðherrann segist vilja hverfa úr embætti hið fyrsta og segir Bandaríkjamenn hafa brugðist klúðurslega við ofbeldi í Írak. Bandaríkjamenn svara um hæl að þeir hefðu hagað aftöku Saddams Hússeins öðruvísi.

Samskipti al-Maliki við ráðamenn í Washington hafa verið stirð allt síðan í fyrra þegar bandaríska blaðið New York Times birti minnisblað frá þjóðaröryggisráðgjafa Bush Bandaríkjaforseta þar sem al-Maliki var sagður veikur leiðtogi sem vissi ekki hvert hann ætti að sækja styrk til starfans. Í viðtali við Wall Street Journal, sem tekið var fyrir jól og birt í gær, sagðist al-Maliki ekki sækjast eftir að gegna embættinu annað tímabil og vildi jafnvel hætta fyrr. Hann gagnrýndi Bandaríkjamenn og sagði þá og bandamenn þeira hafa brugðist seint og illa við ofbeldinu í Írak.

al-Maliki hefur falið sérstakri nefnd á vegum íraska innanríkisráðuneytisins að finna þann sem myndaði aftöku Saddams Hússeins með farsíma og birti á netinu. Þar má heyra að böðla formælta forsetanum fyrrverandi og hæða. Vegna þessa verður framkvæmd aftökunnar rannsökuð.

Bandaríkjaforseti vildi í dag ekki svara spurningum um aftökuna á Saddam Hússein og hundsaði spurningu fréttamanns á blaðamannafundi í Washington í dag. Einn undirmanna hans, William Caldwell, talsmaður Bandaríkjahers í Írak, tjáði sig þó um aftökuna í morgun. Hann sagði að sitt mat væri að Bandaríkjamenn hefðu farið öðruvísi að. Ákvörðunin hafi þó ekki verið þeirra heldur Íraka hvernig aftökunni skyldi hagað.

Arabíska sjónvarpsstöðin Al Arabiya greindi síðan frá því í dag að hálfbróðir Saddams, Barzan Ibrahim, og Awad Hamed, dómari yrðu teknir af lífi á morgun. Þeir voru dæmdir til dauða, ásamt Saddam, fyrir morð á tæplega hundrað og fimmtíu súnníum í bænum Dujali árið 1982 eftir að tilræði við Íraksforsetann fyrrverandi fór út um þúfur. Talsmaður Bandaríkjahers vildi ekki tjá sig um það og sagði það íraskra stjórnvalda að greina frá því hvenær dómnum yrði framfylgt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×