Erlent

Þær berrössuðu unnu

Nektardans hefur verið opinberlega viðurkenndur sem listform, í Noregi og fjármálaráðherra landsins er ekki skemmt. Hún ætlar að heimta af þessu skatt, hvað sem það kostar.

Í Noregi er ekki lagður virðisaukaskattur á listsýningar. Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra, taldi nektardans ekki vera list og heimtaði því skatt af nektarklúbbum. Þeir fóru með málið fyrir dóm og unnu. Málinu var þá vísað til áfrýjunarréttar og aftur unnu þær berrössuðu.

Halvorsen gaf í dag yfirlýsingu þar sem hún segir að hún muni ekki áfrýja frekar, heldur gera breytingar á lögum til þess að geta innheimt skatt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×