Litvinenko sakaður um fjárkúgun 5. janúar 2007 17:43 Litvinenko á dánarbeði sínu. MYND/AP
Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. Konan fullyrti að Litvinenko hefði verið að vinna að því að undirbúa fjárkúgun á ríkum rússneskum kaupsýslumanni til þess að verða sér úti um aukatekjur. Hún tók líka fram að Litvinenko hefði fundist það allt í lagi þar sem viðkomandi auðkýfingur hefði tengsl við Vladimir Putin, forseta Rússlands. Eiginkona Litvinenko neitaði þó ásökunum og sagði að maður hennar væri ekki fær um slíkt. Hugsanlegt er því að einhver annar en Pútin hafi staðið á bak við morðið. Konan vildi ekki segja nafnið á manninum sem átti að fjárkúga en sagði að það hefði ekki verið Boris Berezovsky, sem var einlægur stuðningsmaður Litvinenko, en Berezovsky hafði mánuðina á undan dregið úr fjárstuðningi sínum við Litvinenko. Berezovsky sagði síðan í sama þætti að það hefði verið Pútin sem væri á bak við morðið á Litvinenko. Eiginkona Litvinenko tók þó ekki jafn djúpt í árinni og sagði að morðið hefði ekki getað átt sér stað án vitneskju Vladimirs Pútin, forseta Rússlands.
Erlent Fréttir Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira