Erlent

Íhuga að beita kjarnavopnum

Ísraelar eru sagðir íhuga árásir á kjarnorkuvinnslustöðvar Írana með atómssprengjum og koma þar með í veg fyrir að þeir geti haldið áfram auðgun úrans. Frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu sprengjum sínum á Hiroshima og Nagasaki árið 1945 hefur slíkum vopnum aldrei verið beitt í hernaði.

Þetta kemur fram í breska blaðinu Sunday Times í dag en heimildir sínar hefur blaðið frá háttsettum foringjum í ísraelska hernum. Þar er fullyrt að fyrir um nokkurt skeið hafi tvær ísraelskar flugsveitir æft aðflug að kjarnorkuvinnslustöðvum Írana með það fyrir augum að eyðileggja möguleika þeirra á að koma sér upp kjarnavopnum. Ísraelar hafa einkum þrjár stöðvar í huga sem þeir telja að gegni lykilhlutverki í kjarnorkvopnaáætlun Írana. Þar sem ein þeirra, sú í Natanz, er langt undir yfirborði jarðar er talið nauðsynlegt að varpa á hana litlum kjarnorkusprengjum til að eyðileggja hana eftir að hefðbundnar sprengjur hafa brotið að henni leið.

Ísraelar hugsa með hryllingi til þeirrar stöðu sem upp er komin ef Íranar ná að búa til kjarnorkusprengju enda hefur Mahmoud Ahmadinejad ítrekað lýst því yfir að Ísrael verði að þurrka út af heimskortinu. Stjórnmálaskýrendur eru ekki á einu máli hvers vegna Ísraelar geri þessi nú áform ljós. Á síðasta ári fullyrti bandaríski blaðamaðurinn Seymour Hearsh að embættismenn í Pentagon íhuguðu að varpa litlum kjarnorkusprengjum á íranskar vinnslustöðvar og vitað er að þeir hafa rætt við ísraelska embættismenn um aðgerðir. Vera má að Ísraelar séu með þessu að knýja Bandaríkjamenn til aðgerða eða að setja hræða stjórnvöld í Teheran.

Hvert svo sem markmiðið er er ljóst að Ísraelar víla ekki árásir á borð við þessar fyrir sér því árið 1981 vörpuðu þeir sprengjum á Osirak-kjarnakljúfinn í Írak til að koma í veg fyrir kjarnorkuáætlun Saddams Hussein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×